lögreglulög.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður spyr ráðherra hvort hún geti staðfest að þingmenn hafi ekki verið hleraðir frá 1969. Ég get ekki staðfest það, ég ætla að segja það hér og nú, líka vegna þess að hlerunum er ekki beitt nema það sé grunur um refsiverða háttsemi og þá þarf dómsúrskurð til.
Þetta er ekki á alnetinu. Þetta er ekki eftirlit með einstaklingum. Ef það á að vera eftirlit með einstaklingum, hvort sem það er á alnetinu eða annars staðar, þá mun þurfa dómsúrskurð. Það þarf að vera grunur um refsiverða háttsemi og þá þarf dómsúrskurð. Það er alveg skýrt. Það er líka alveg skýrt að í þessu frumvarpi er verið að óska eftir heimildum lögreglunnar. Þetta eru heimildir sem nágrannalöndin okkar eru löngu búin að innleiða. Þá spyr ég: Eru Danmörk, Noregur, og Svíþjóð ekki lýðræðisríki, af því að hv. þingmaður talaði hér um lýðræðisríki? Eru það ekki lýðræðisríki? Eru mannréttindi þar fótum troðin því að þau hafa veitt lögreglunni í þessum ríkjum heimildir til þess að stunda þessar afbrotavarnir? Ég spyr: Eru það ekki lýðræðisríki?