154. löggjafarþing — 75. fundur,  20. feb. 2024.

lögreglulög.

707. mál
[17:51]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að viðurkenna að það sé ekki útilokað að einhverjir þingmenn hafi verið hleraðir. Þá bíð ég bara eftir því að senda inn nýja fyrirspurn til að fá meiri upplýsingar um hvaða hleranir hafi verið stundaðar.

Hæstv. ráðherra spurði hvort Danmörk, Svíþjóð, Finnland og Noregur væru ekki lýðræðisríki. Og jú, þau eru það svo sannarlega. Ég nefndi landið Ungverjaland sem dæmi um land þar sem lýðræði væri á niðurleið. En það sem við í Pírötum höfum bent á ítrekað við umræðu þessa máls, bæði í fyrra og núna í ár, er að á Norðurlöndunum er miklu öflugra eftirlit með störfum lögreglu en er hér á landi. Og með því að efla eftirlitið þá ætti að auka vægið í því að passa upp á það að lögreglan sé ekki að nýta þessi ákvæði til að gera hluti sem á ekki að gera. (Dómsmrh.: … hefur verið að auka eftirlit.) — Hefur verið að auka eftirlit, en ekki nægilega mikið, hæstv. ráðherra, og það þarf að gera það sjálfstæðara. Nú er hæstv. ráðherra dugleg að segja: Við viljum herma eftir Norðurlöndunum í útlendingamálum og öðru. Hvernig væri að herma eftir Norðurlöndunum líka þegar kemur að eftirliti með lögreglu? (Gripið fram í: Heyr, heyr.) — Það er gaman að hafa hérna köllin sitthvorum megin. — En ef við ætlum að gera þetta vel þá þurfum við að bæta það. Ég vildi gjarnan sjá upplýsingar frá hæstv. ráðherra um það hvernig eftirliti með lögreglu er háttað á hinum Norðurlöndunum.