154. löggjafarþing — 75. fundur,  20. feb. 2024.

lögreglulög.

707. mál
[19:44]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni kærlega fyrir ræðuna. Ég held að það sé mikilvægt fyrir okkur hér í þingsal að heyra einmitt reynslu fyrrverandi lögreglumanns og tek undir það sem hann segir um mikilvægi þessa máls.

Eins og farið hefur verið yfir þá kom þetta mál til þingsins í fyrra og hlaut töluverða umfjöllun og vinnu í hv. allsherjar- og menntamálanefnd og kemur nú í aðeins breyttu formi. Mér finnst það endurspegla þá vinnu sem átti sér stað í nefndinni í fyrra. Mér telst til að við séum að verða búin að ræða þetta núna í um sex klukkustundir rúmar. Það er kannski óvanalegt að mál séu rædd í 1. umræðu í svo langan tíma en ég held engu að síður að umræðan hafi verið góð. Ég vona að hún sé til þess fallin að auðvelda okkur að ná utan um málið í allsherjar- og menntamálanefnd. Ég sagði hér fyrr í andsvari að umræðan var á köflum mjög ruglingsleg hjá okkur í fyrra og mér finnst að það eimi kannski enn þá af því í dag að fólk sjái kannski eitthvað meira út úr þessu frumvarpi en þarna raunverulega er. Það er þá hlutverk okkar í allsherjar- og menntamálanefnd að fara skýrt yfir það.

Við sjáum hvernig þessi málaflokkur er að þróast. Við sjáum að glæpir eru að færast í auknum mæli inn á alnetið og þá hlýtur að vera eðlilegt að lögreglan hafi þau tæki og tól, þær heimildir sem hún þarf á að halda til að ná utan um þessi mál. Nýverið funduðum við í forsætisnefnd Norðurlandaráðs í Svíþjóð þar sem við óskuðum eftir sérstakri umræðu um afbrot og glæpagengi og hvernig þau flæða yfir landamæri. Það var mjög áhugavert að heyra fulltrúa ríkislögreglustjóra Svíþjóðar lýsa þróuninni sem þau eru að upplifa á þeim áskorunum sem þau standa frammi fyrir.

En að því sögðu þá er það alls ekki vilji þeirrar sem hér stendur að við búum í einhvers konar lögregluríki. Að sjálfsögðu er friðhelgi einkalífsins ofboðslega mikilvæg og við megum ekki stofna því í hættu, að hér séu allir einhvern veginn undir smásjá lögreglunnar í einu og öllu. En ég hef ekki sérstakar áhyggjur af því að þetta frumvarp sem hér liggur fyrir sé einmitt með þeim hætti, alls ekki. Ég held að þetta séu bara nauðsynlegar heimildir til handa lögreglunni og að þær séu nokkuð vel skilgreindar sem hér um ræðir. Ef það er einhver misbrestur á því að þingmenn hafi sama skilning á því sem hér liggur undir þá þurfum við að fara yfir það og fá til okkar bæði sérfræðinga úr ráðuneytinu og aðra umsagnaraðila til að fara yfir það og ítreka hvað það er raunverulega sem hér um ræðir.

Ég sagði það líka hérna áðan að skilningur minn á þessu frumvarpi væri að hér erum við í rauninni að gefa lögreglunni heimildir sem til að mynda bara fjölmiðlar hafa í dag. Fjölmiðlar segja fréttir af því hver var hvar, á einhverjum veitingastöðum eða íþróttaviðburðum eða þorrablótum eða hvað það er. En lögreglan telur sig í rauninni ekki hafa heimildir til að fylgjast með slíku. Við höfum líka heyrt lögregluna lýsa vandkvæðum við að taka á móti upplýsingum frá erlendum lögregluyfirvöldum þótt við sjáum auðvitað skýr dæmi um að það samstarf virðist ganga vel. En engu að síður er ákall um að við þurfum að búa betur um það í löggjöfinni okkar hvernig tekið er við slíku. Ég heyri hér fólk óttast það að lögreglan myndi með upplýsingaöflun sinni geta safnað upplýsingum um allt og engan, fólk sem ekki er grunað um brotastarfsemi. Og auðvitað viljum við ekki að það sé þannig að hér sé t.d. verið að fylgjast með því hver stendur í mótmælum úti á Austurvelli og það sé skráð í einhverjar lögreglubækur og svo sé það borið saman við einhverjar upplýsingar annars staðar. Við sjáum auðvitað svona dæmi í einræðisríkjum þar sem lýðræðið er fótum troðið að fólk sem stundar mótmæli og hlýðir reglum réttarríkisins getur jafnvel verið dregið til ábyrgðar. Það er ekki það sem við viljum að byggist upp hér og það er ekki það sem þetta frumvarp fjallar um.

Maður heyrir það samt sem áður skýrt að það er mismunandi nálgun gagnvart því að treysta lögreglunni til að gæta að öryggi almennings. Ég ber fullt traust til lögreglunnar á sama tíma og ég tel auðvitað að það sé mikilvægt að það sé eðlilegt eftirlit með störfum lögreglunnar vegna þess að lögreglan hefur jú ákveðnar heimildir. Ég lít alls ekki á það sem eitthvert einkaleyfi til að beita ofbeldi, eins og hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir nefndi hér ítrekað í ræðum sínum, eða það að lögreglan sé að óska eftir dóti og sé eins og einhver frekur kall sem brýtur alltaf dótið sitt og óskar svo eftir meiru og meiru, eins og hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir sagði í ræðu í gær.

En það breytir ekki þeirri staðreynd að við þurfum einhvern veginn að ná utan um málið. Maður heyrir það á umræðum bæði í þingsal og svo sem á fréttaflutningi af málinu að sumir hafa bara ákveðið að styðja málið ekki. Það er allt í lagi. Við eigum bara að taka lýðræðislega umræðu um kosti þess og galla og öllum er frjálst að annaðhvort styðja málið eða ekki. En ég vona svo sannarlega að umræðan í nefndinni og áframhaldandi vinna verði til góðs og verði til þess að við getum á endanum afgreitt þetta mál sem lög frá Alþingi. Við munum að sjálfsögðu taka mið af því sem hér hefur fram farið í dag og þeim umsögnum sem til nefndarinnar berast og það er auðvitað nauðsynlegt að við höfum öll sama skilning á þeim heimildum sem hér er um að ræða, hvað þær þýða nákvæmlega. Það er til að mynda ekki skilningur minn að hér sé verið að gefa heimildir til að hlera fólk, hvort sem það er í gegnum hefðbundið símtæki eða vafur á netinu. Þó að hér sé verið að veita heimildir til að vakta vefi þá horfi ég á að það sé eins og heimildir er lúta að því að lögreglan fylgist með einhverjum síðum t.d. sem eru að selja vöru eða þjónustu, notaða hluti eða annað, fylgist með því að ekki sé verið að selja eitthvert góss úr einhverjum innbrotum eða að verið sé að selja fíkniefni eða vændi eða þess háttar. Mér finnst það bara eðlilegt og tel að lögreglan eigi að fylgjast með slíkum hlutum.

Við ræddum það mikið í fyrra að hér er um þrjá liði að ræða og ég ætla að hrósa hæstv. ráðherra fyrir frumvarpið. Mér finnst það skýrara núna en það var á fyrri stigum, skýrara um hvaða þætti er verið að ræða. Ég treysti á áframhaldandi gott samstarf við hæstv. dómsmálaráðherra og hennar góðu sérfræðinga í ráðuneytinu þegar kemur að vinnu okkar í hv. allsherjar- og menntamálanefnd við þetta mál.