154. löggjafarþing — 76. fundur,  21. feb. 2024.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:01]
Horfa

Forseti (Oddný G. Harðardóttir):

Borist hafa bréf frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 982, um upprunavottaða orku við álframleiðslu, frá Andrési Inga Jónssyni. Þá hefur borist bréf frá innviðaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1045, um undanþágur frá fasteignaskatti, einnig frá Andrési Inga Jónssyni.