Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Hvernig líður fólki af erlendum uppruna á Íslandi? Hversu miklu máli skiptir það að finnast þú tilheyra því samfélagi sem þú býrð í? Mjög miklu. Á síðasta áratug hefur útlendingum á Íslandi fjölgað gríðarlega. Á síðustu fimm árum hefur erlendum ríkisborgurum fjölgað um hátt í 30.000 og af því eru 5.000 börn. Það er og hefur verið kostur fyrir íslenskt samfélag hversu sveigjanlegur íslenskur vinnumarkaður er. Þannig hefur fólk sóst eftir að flytja hingað og vinna þegar umsvifin eru mikil en jafnan farið annað eða aftur til síns heima þegar umsvifin minnka. Þetta er mikilvægur og góður kostur fyrir lítið velmegunarsamfélag eins og Ísland. En þegar við tökum á móti fólki sem hingað flytur með fjölskyldur sínar til lengri tíma er gríðarlega mikilvægt að fólk upplifi sig þannig að það tilheyri samfélaginu. Mikilvægt að börnum sem ganga í íslenska skóla vegni vel og hafi sömu tækifæri til að blómstra og þau börn sem hér fæðast.
En hvernig líður þessum börnum í íslenska skólakerfinu? Niðurstöður PISA voru okkur enn og aftur vonbrigði, en meira um það síðar. Eina jákvæða niðurstaða PISA var að börnunum okkar líður almennt vel í skólunum. Þau telja sig tilheyra skólasamfélaginu, eru jákvæð gagnvart kennurum sínum og upplifa síður einelti en börn á hinum Norðurlöndunum. Þetta er auðvitað mjög jákvætt og ætti að vera góður grunnur til að byggja betri námsárangur á. En hvernig er það þegar við skoðum þessa sömu þætti eftir uppruna skólabarna á Íslandi? Þá eru niðurstöðurnar sláandi. Börn af erlendum uppruna í íslensku skólakerfi upplifa sig síður tilheyra samfélaginu en önnur börn. Þau telja sig mun síður tilheyra en innflytjendur á hinum Norðurlöndunum. Þarna ná Norðmenn bestum árangri og af þeim eigum við að læra. En upplifunin að tilheyra er svo sannarlega mikilvæg. Hún er grunnstoðin fyrir því að börnum vegni vel í skólakerfinu. Verkefni skólanna okkur eru mikil og það er gríðarlega mikilvægt að á sama tíma og við verðum að bæta námsárangur allra barna (Forseti hringir.) þá kalla þessar niðurstöður á sérstakar aðgerðir er lúta að því hvernig við tökum á móti erlendum börnum í skólakerfinu okkar.