154. löggjafarþing — 76. fundur,  21. feb. 2024.

Störf þingsins.

[15:14]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Ég vil nefna hér í upphafi míns máls að mér finnst gríðarlega mikilvægt þegar við erum að ræða um þau mál sem skipta landsmenn máli að sú umræða sé byggð á staðreyndum, að staðreyndir hafi rými í umræðunni og að við gætum okkar í því, sérstaklega þegar við erum að tala um hópa í viðkvæmri stöðu. Það er staðreynd að 90% allra útlendinga á Íslandi eru ekki hælisleitendur. 90% eru ekki hælisleitendur. Helmingurinn af þeim sem koma síðan í gegnum hælisleitendakerfið er fólk frá Úkraínu. Þetta fólk höfum við ákveðið að taka út fyrir sviga. Það er velkomið og við spyrjum ekki einu sinni spurninga. Hópurinn sem eftir stendur er um 2.000 einstaklingar eða þar um bil. Því er núna haldið fram af ríkisstjórnarflokkunum, sérstaklega þeim sem er lengst til hægri, Sjálfstæðisflokknum, að álag á innviði sé þess eðlis að það megi heimfæra það upp á hælisleitendur, þennan 2.000 manna hóp. Hvaða sögu segir það okkur um uppbyggingu innviða í þessu landi, heilbrigðiskerfisins, menntakerfisins, og við getum meira að segja tekið vegakerfið, samgöngur og öll velferðarkerfin okkar, ef 2.000 einstaklingar eru þess megnugir að setja þá endanlega á hliðina? Hversu traustir eru innviðirnir okkar þá fyrir?

Það er stundum talað um opin landamæri. Menn gleyma því að það eru opin landamæri þegar kemur að fólki frá Evrópu. Hingað geta 500 milljónir flutt á morgun en kjósa einhverra hluta vegna ekki að gera það. Við erum hins vegar með hreyfanlegan vinnumarkað sem þýðir að þegar atvinnustigið er hátt þá koma mjög margir og það verður þá, jú, ákveðið álag á innviði vegna þess að þetta eru tugþúsundir en ekki bara 2.000 hælisleitendur. Umræðan í samfélaginu er orðin þannig að það er orðið norm að hallmæla hópi sem er í mjög viðkvæmri stöðu. Það er orðið norm (Forseti hringir.) að beita ekki fyrir sig staðreyndum. Þessu verðum við að breyta.(Gripið fram í: Heyr, heyr.)