Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég vil fagna þeirri heildarsýn í málefnum útlendinga og innflytjenda sem ríkisstjórnin kynnti í gær ásamt aðgerðum til að ná markmiðum sem sett eru fram undir þeirri sýn. Á síðustu árum hafa verið stigin alla vega skref í málaflokknum en þau hafa ekki alltaf verið stigin í takt. Nú er hér í fyrsta skipti tekið heildstætt utan um verkefnið og það skiptir máli. Áherslan sem lögð er byggir á mannúð og mikilvægi þess að fjárfesta í fólki með markvissri afgreiðslu umsókna og inngildingu þeirra sem hér setjast að. Þessar aðgerðir eru í fullu samræmi við stefnu Framsóknar og þann málflutning sem sú sem hér stendur hefur staðið fyrir á þingi í tíu ár. Verkefnin sem sjónum er beint að skipta allar byggðir landsins máli. Ég vil sérstaklega draga fram aðgengi að íslenskunni, ráðgjöf til starfsfólks skóla og umbætur við mat á menntun innflytjenda. Ég vil líka leggja áherslu á að við höfum víða góðan grunn undir þær aðgerðir sem sjónum er nú beint að. Sérstaklega vil ég vekja athygli á því sem framhaldsfræðslan hefur unnið að í meira en 20 ár, sennilega nær 25 árum, en þar hafa símenntunarmiðstöðvarnar sinnt íslenskukennslu og samfélagsfræðslu. Þær hafa unnið mikið frumkvöðlastarf og seinna kom Fræðslumiðstöð atvinnulífsins inn í verkefnið. Þær unnu frumkvöðlastarf þar sem skorti þekkingu og reynslu. Byggjum á þeirri vinnu sem þar hefur verið unnin til þessa. Köstum ekki barninu út með baðvatninu.