154. löggjafarþing — 76. fundur,  21. feb. 2024.

Störf þingsins.

[15:21]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti. Æska okkar margra hér var æði gjaldfrjáls miðað við það sem í dag er. Ég man þá tíma þegar maður gat skotist til útlanda fyrir tiltölulega sanngjarnt verð, verslað á sterku íslensku gengi krónunnar og geymt bílinn sinn á Miðnesheiði án þess að þurfa að borga fyrir það sérstaklega. Svo voru einhverjum einkavinum afhend leyfi til að fara að rukka mann, malbika heiðina, og nú er þetta 10.000, 12.000, 15.000 kall ef maður skýst til útlanda, akandi á völlinn.

Náttúrupassinn var mikið hér til umræðu fyrr á árum og kostaði nú a.m.k. einn ráðherra embættið, ef ég man rétt, og nú eru nýjar hugmyndir um náttúrupassa. Rukka, rukka, segir ríkið. Meira, meira. Ég minni á að það var litla gula hænan í hnotskurn sem birtist okkur í náttúrupassaumræðunni. Enginn vildi fá náttúrupassagjald á sig, ekki flugfélögin, ekki rútufyrirtækin og ekki ferðaskrifstofurnar, en þetta var hengt um hálsinn á hótelunum sem vörðust lengi vel en fengu þetta engu að síður yfir sig. Náttúrupassinn varð að gistináttagjaldi sem er komið núna til innheimtu. Þessi 80 frumvörp á ári sem við afgreiðum hér kosta öll, enda um hálsinn á skattgreiðendum, þegnunum og ríkissjóði. 80 mál héðan plús 650 tilskipanir að utan, frá Evrópu, kostar líka allt, núna síðast holræsamálið sem mun kosta okkur 150 milljarða að lágmarki.

Ég legg til, kæru félagar, að við förum að einbeita okkur að því að vinda ofan af þessu rukkunarblæti ríkisins og förum að reyna að lækka álögur, (Forseti hringir.) lækka gjöldin á þegnana og íslenskan almenning, þyrma honum. Göngum hægt um gleðinnar dyr í þessum efnum.