Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Hugmyndin um ríkisborgararétt á sér fornar rætur, nánar tiltekið í borgríkinu Aþenu í Grikklandi til forna þar sem einstaklingar, reyndar bara frjálsir og fullveðja karlmenn, voru viðurkenndir sem borgarar með ákveðin réttindi og skyldur. Þetta var frávik frá hugmyndinni um fólk sem þegna konunga og harðstjóra og til varð fyrirmyndarkerfi sem viðurkenndi þátttöku og ábyrgð meðlima þess. Það gekk síðan í endurnýjun lífdaga í Rómaveldi og síðan auðvitað í kjölfar frönsku og bandarísku byltinganna undir áhrifum upplýsingarinnar. Ríkisborgararéttur nær yfir hugmyndina um að tilheyra samfélagi, þjóð eða ríki. Það er ekki bara lagaleg staða heldur sameiginleg sjálfsmynd, skuldbinding við gildismat og virk þátttaka í málefnum samfélagsins, t.d. kosningum. Ríkisborgararéttur táknar réttindi og skyldur sem fylgja því að tilheyra pólitískri einingu.
Undanfarið hefur fjölgað mjög í hópi þeirra sem hingað flytja í leit að betra lífi og er það ánægjuefni. Við eigum, þegar við loksins setjumst niður við það verkefni að móta okkur innflytjendastefnu, að gera upptöku íslensks ríkisborgararéttar að sérstöku markmiði þeirra sem kjósa að setjast hér að, rétt eins og gert er í Kanada. Til að svo megi verða þarf það að vera aðlaðandi, sérstaklega fyrir þau sem koma hingað með vegabréf sem veita þeim nánast full réttindi hér, þ.e. aðildarlanda EES, að verða íslenskur ríkisborgari. Það á að vera hátíðleg stund sem fólk fagnar að fá íslenskan ríkisborgararétt og við eigum að koma á fót fallegri athöfn í kringum það, í stað þess að fólk fái bara tilkynningu í tölvupósti um aðgang að Ísland.is eða hvernig sem þetta gerist í dag. Vegferðin til íslensks ríkisborgararéttar þarf líka að vera skilgreind og þar á færni í íslensku og þekking á sögu og lýðræðisgildum þjóðar og ríkis að skipa sess.
Virðulegi forseti. Ríkisborgararéttur er ekki aðeins réttarstaða. Það er sameiginleg skuldbinding við þær meginreglur sem binda okkur saman sem samfélag. Hann snýst um að þekkja réttindi okkar, virða skyldur okkar og gildi, efla tilfinningu um einingu í fjölbreytileika og stuðla að velferð og farsæld lýðveldisins Íslands.