varðveisla íslenskra danslistaverka.
Hæstv. forseti. Ég mæli hér í dag fyrir þingsályktunartillögu sem miðar að því að fela menningar- og viðskiptaráðherra að hefja vinnu við að stuðla að varðveislu íslenskra dansverka. Dans er list augnabliksins. Ekkert kemur í stað þess að upplifa dansverk á þeim tíma og í því rúmi sem það er flutt. Eins og með önnur sviðslistaverk er það nærvera við listamanninn sem býr til galdurinn, hrífur okkur með og veitir okkur dýpri skilning á okkur sjálfum sem er vitaskuld tilgangur listarinnar þegar upp er staðið. Það er ekki þar með sagt að það sé ekki hægt að varðveita heimildir um listaverkið og flutning þess. Tæknin hefur fært okkur fjölmargar aðferðir, svo sem myndupptökur til að miðla til framtíðarinnar því sem fór fram, en eins og kemur fram í greinargerðinni með þessari þingsályktunartillögu eru dansverk oft varðveitt á annan hátt en þann, t.d. með handritum, dansnótum, ljósmyndum, búningum, leikmunum, plakötum og teikningum. Slíkir hlutir passa oft illa inn í hefðbundin skjalasöfn.
Hér á landi hefur varðveislu dansverka ekki verið sinnt sem skyldi. Myndbandsupptökur eru að mestu til staðar af verkum Íslenska dansflokksins en lítið hefur varðveist þegar kemur að sjálfstæðu danssenunni. Þetta er auðvitað menningarsögulegt slys því að hér hefur dansinn verið í gríðarlegri sókn síðustu áratugi og mikilvægt er fyrir menningu þjóðarinnar að heimildir um þennan uppgangstíma séu varðveittar. Við verðum því að gera betur. Við þurfum ekki að leita langt að fyrirmyndum að því hvernig þetta er gert því að á hinum Norðurlöndunum er staðið mun betur að þessum málum heldur en hér og væri gott ef við gætum sett okkur það markmið að nálgast það sem þar gerist.
Mig langar til að grípa niður í BA-rannsókn listdansarans Þorgerðar Atladóttur, með leyfi forseta. Hún segir:
„ …mörg íslensk dansverk hafa glatast þótt til séu upplýsingar og/eða heimildir um þau. Önnur dansverk er erfitt að nálgast því aðstandendum er ekki kunnugt um hvar gagnaskrár gæti verið að finna. Sá staður sem helst ætti að geyma gögn um íslensk dansverk, Leikminjasafn Íslands, hefur fá sem engin dansverk á skrá, sérstaklega þegar kemur að sjálfstæðu senunni. Stofnunin er undirmönnuð og -fjármögnuð.“ — þ.e. undirmönnuð og undirfjármögnuð — „Úrbóta er því þörf í málefnum um varðveislu dansverka á Íslandi og með stefnumótun ráðuneytis gæti verið lagður góður grunnur að varðveislu framtíðarinnar.“
Orð eru til alls fyrst. Í greinargerð með þessari tillögu er ráðherra hvattur til að hefja samtal við fagfólk innan greinarinnar um hvernig verði best að þessu staðið. Best er ef hægt er að hefjast handa sem allra fyrst því að á meðan ekkert er gert erum við að tapa menningarverðmætum og leyfa þeim að glatast í augnablikinu. Þótt augnablikið sé dýrmætt og ekkert komi í stað þess getum við þó gert okkar besta til að varðveita heimildirnar um það. Út á það gengur þessi tillaga.
Ég vil svo að lokum segja, hæstv. forseti, að það er ánægjulegt fyrir mig persónulega að standa hér og mæla fyrir þingsályktunartillögu því að það gerði ég síðast fyrir 25 árum og fimm dögum eða 16. febrúar 1999. Það hafa svo sem ekki verið mörg tækifæri til þess þennan aldarfjórðung, svo að það sé nú sagt. Það mál snerist um að álykta um að skipa skyldi nefnd fagaðila og aðila úr menntamálaráðuneyti, viðskiptaráðuneyti og utanríkisráðuneyti til að skoða hvernig íslenska ríkið gæti stutt útflutning á íslenskri dægurtónlist. Tími slíkra hugmynda var ekki kominn árið 1999 þannig að það mál var andvana fætt og komst ekki út úr nefnd.
Ég vil að lokum þakka meðflutningsfólki mínu fyrir stuðninginn og vona að þessi tillaga hljóti brautargengi í gegnum nefndir þingsins og verði að lokum send til ráðherra sem tillaga frá Alþingi.