varðveisla íslenskra danslistaverka.
Hæstv. forseti. Takk fyrir þessa spurningu. Það er hárrétt. Ef við horfum bara á danssenuna, sérstaklega sjálfstæðu senuna, er hennar helsta áskorun fjárskortur og að mörgu leyti tímaskortur. Það kostar peninga að gera hluti almennilega. Auðvitað er hægt að taka hluti upp á símann sinn en það er ekki það sem er verið að tala um hér. Það sem verið er að tala um er að þetta sé gert á „professional“ hátt og þannig að sómi sé að og að þetta varðveitist í bestu mögulegu gæðum. Og það kostar peninga. Það er skortur á þeim sem kannski hefur orðið til þess að þetta hefur ekki verið gert meira. Hugsanlega mætti sjá það fyrir sér að hægt væri að leita í einhvern sjóð eða það væru þá einhverjir aðilar sem hefðu það með höndum að tryggja að danssýningar væru varðveittar og hefðu þá einhverja „resorsa“ á bak við það til að taka upp eða nota þá tækni sem er til staðar á hverjum tíma til að varðveita sýningarnar.