höfundalög.
Forseti. Ég þakka stórgóða spurningu. Já, en við ákváðum í rauninni bara að draga línuna þarna upp á ákveðinn einfaldleika að gera. Þetta myndi t.d. þýða að það hefði verið óleyfilegt að teikna Hemma Gunn þarna upp í áramótaskaupinu af því að hann getur ekki gefið leyfi sitt. Það er hægt að hugsa sér aðra möguleika í þessu hvað varðar opinberar persónur, en aftur þá með samþykki afkomenda og þess háttar, en það er óþarfi þegar allt kemur til alls að mínu mati, einnig með aðra rétthafa. Það er skýrt í rauninni í erfðalögum og svoleiðis hverjir eru erfingjar og hverjir hafa eitthvað um málið að segja, af því að það má setja viðkomandi upp í þessari paródíu, þ.e. bara ekki þegar um raunverulega eða það sem mætti ætla að sé raunveruleg endurgerð er að ræða, þannig að ekki sé verið að reyna að plata fólk með því að þetta sé raunverulega viðkomandi aðili, þannig að það mætti setja Hemma Gunn þarna upp á þann hátt að fólk myndi augljóslega sjá að þetta er ekki viðkomandi aðili heldur einhver skopmyndagerð af viðkomandi eða þess háttar. Ég held að það sé í alvörunni bara góð hugmynd að draga línuna þarna og segja bara: Fyrirgefið, það er of alvarlegt að geta sett einhvern fram á þann hátt að fólk geti haldið að þetta sé raunverulega manneskjan sem er þarna myndgerð eða hljóðgerð eða eitthvað þess háttar, að við höldum línunni. Ég myndi giska á það alla vega. Hitt yrði allt of flókið, held ég.