þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir einhverfa.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þetta góða mál sem hér hefur verið reifað og er stoltur af því að vera meðflutningsmaður. Ég óska þess innilega að það hljóti brautargengi hér í nefndum og umræðum sem í kjölfarið fylgja. Það er gott að halda því til haga að við erum sennilega flest ef ekki öll á einhvers konar rófi, spurningin er bara á hvaða stigi rófsins mælingar gætu átt sér stað. Það er líka gott að hafa í huga að hér hafa nú í þessum sal setið fjölmargir með einhvers konar Asperger eða einhvers konar vísi að því sem hér er um rætt. Það er vert að hafa í huga að margir þeir sem hafa skarað fram úr í heiminum í sögunni hafa verið á einhvers konar rófi og er þá tekið til tónlistar, vísinda, bókmennta og ýmissa þátta. Mér finnst þetta sérstaklega áhugavert og ég spyr hv. þingmann hvort hann sé sammála því að söfnun á þekkingu og upplýsingum og niðurstöðum rannsókna gæti kannski leitt til aukinnar meðvitundar um í fyrsta lagi hvað væri æskilegt eða ekki æskilegt að meðtaka. Við vitum að við erum umvafin hugbreytandi efnum. Áfengi er hugbreytandi og mætti jafnvel segja að kaffi væri það að sumu leyti líka, það breytir ástandinu og svo hef ég séð a.m.k. tvær heimildarmyndir, mjög áhugaverðar, um hvernig breytt mataræði breytti mjög líðan viðkomandi og hegðan. Þetta tel ég vera einn af mikilvægum þáttum þessa máls. (Forseti hringir.) Ég fagna málinu og spyr hv. þingmann hvort hann sé mér sammála um að í þessu felist mikilvæg rannsóknarvinna.