þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir einhverfa.
Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið við mínum vangaveltum hér. Eitt sem ég hefði talið vera spennandi áskorun í þessu er að auka virkni þeirra sem eru hugsanlega með mjög sterka hæfileika á einu tilteknu sviði en glíma kannski síðan við einhverfueinkenni á öðrum sviðum, að geta veitt slíku fólki farveg í atvinnulífi, leyft því að njóta sín og njóta hæfileika sinna og sérgáfna sem sannarlega eru svo ótal mörg dæmi um. Það finnst mér út af fyrir sig vera ein af þeim mest spennandi áskorunum sem við blasa í þessu og það að geta einmitt aukið lífsfyllingu og vellíðan þeirra sem teljast á rófi, á hvaða stigi sem það væri. Ég er ekki viss um hvort það hafi verið gerð greining eða fjármálaleg úttekt á því hversu mikil starfsemi myndi þarna rúmast en það væri áhugavert ef þingmaðurinn hefði þær áætlanir eða kannski einhvers konar samhengi, ekki að það skipti höfuðmáli heldur bara að ímynda sér hvað þarf og hvað væri mögulegt að gera. Gætum við verið að leita eftir alþjóðlegu samstarfi við aðrar sambærilegar miðstöðvar og gert slíka rannsóknastöð að raunverulegri alþjóðlegri rannsóknarmiðstöð?