154. löggjafarþing — 77. fundur,  22. feb. 2024.

öryggis- og varnarmál í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu.

[10:42]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að hrósa hæstv. utanríkisráðherra fyrir að hafa tekið starfsmenn rússneska sendiráðsins inn á sinn fund og mótmælt harðlega meðferðinni á Navalny. Mér finnst það til mikillar fyrirmyndar og í samræmi við það sem m.a. ég hef hvatt íslensk stjórnvöld til að gera, að standa fast í fæturna með því að hjálpa þeim sem eru í andófi við þessa andlýðræðislegu stjórn sem er í Rússlandi. Eftir innrás Rússa í Úkraínu hafa allar þjóðir í Evrópu farið í það, og ekki síst nágrannalönd okkar, að endurmeta varnir sínar og öryggi. Við sjá hvernig Svíar og Finnar ákváðu að fara þá leið að fara inn í NATO. Fyrir okkur Íslendinga eru grunnstoðir okkar í varnarmálum náttúrlega annars vegar NATO-aðildin, og gríðarlega mikilvægt að við beitum okkur mjög skýrt á þeim vettvangi, og síðan er hin undirstaðan tvíhliða varnarsamningur okkar við Bandaríkin. Mig langar að vita frá hæstv. ráðherra — af því að nú eru mjög glannalegar yfirlýsingar Trump, og þó að hann sé ekki orðinn forseti er því miður hætt við að hann verði það, þegar farnar að hafa áhrif á samtalið innan Evrópu. Við erum að sjá Þjóðverja tala um m.a. byggingu kjarnavopna og Evrópa er öll að þjappa sér saman, sérstaklega í ljósi þess ef fimmta stoðin innan NATO er að veikjast, þ.e. að árás á eitt ríki þýði árás á öll aðildarríki NATO. Mig langar að vita frá hæstv. ráðherra hvaða sviðsmyndir hafa verið teiknaðar upp og hvort hann hafi ekki áhyggjur af þessari nálgun Bandaríkjamanna. Það er alveg skýrt að Joe Biden er ekki þarna en þetta hefur engu að síður þau áhrif að ríki Evrópu eru að endurmeta líka að nýju sína varnir og öryggi. (Forseti hringir.) Ég vona og ég hvet hæstv. ráðherra til að segja okkur að þetta sé haft í huga því að við megum ekki vera með þann hugsunargang (Forseti hringir.) þegar kemur að vörnum og öryggi að þetta reddist bara og svo sjáum við til. Við þurfum að vera með plan og hvert er planið?