154. löggjafarþing — 77. fundur,  22. feb. 2024.

fjölskyldusameining fyrir Palestínumenn frá Gaza og afstaða Ísraels til tveggja ríkja lausnar.

[10:50]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Mig langar til að nýta þetta tækifæri til að spyrja hæstv. utanríkisráðherra um tvennt er varðar Ísrael og stríðið á Gaza. Ég las á heimasíðu utanríkisráðuneytisins í fyrradag held ég frásögn af því að fulltrúar utanríkisráðuneytisins hefðu verið í Egyptalandi að aðstoða við fjölskyldusameiningu þess fólks, aðallega barna og kvenna, sem fengið hefur dvalarleyfi á Íslandi vegna reglna um fjölskyldusameiningu. Mig langar til að spyrja ráðherrann um árangurinn af því samtali, hvernig það gangi, og hvort við megum eiga von á því að þessir hinir sömu fulltrúar komi heim með fólk frá Gaza, að við náum að bjarga þeim mannslífum sem við höfum þó a.m.k. tækifæri til að bjarga í þessu hræðilega stríði sem nú geisar á Gaza. Ég þarf ekki að taka það fram, forseti, að hér er um líf eða dauða að tefla. Við erum í raun í kapphlaupi við tímann. Það eru 30.000 manns fallin, við þekkjum öll tölurnar, og það verður að nást árangur. Það verður að nást árangur.

Hitt sem mig langar til að spyrja ráðherrann að, forseti, eru nýfallin ummæli forsætisráðherra Ísraels, Netanyahus, þar sem hann tekur af allan vafa, ef svo má að orði komast, um afstöðu ríkisstjórnarinnar þar til tveggja ríkja lausnarinnar. Hann segir Ísrael ekki tilbúið til þess að viðurkenna tveggja ríkja lausnina. Við höfum svo sem vitað að hægri öfgamenn í Ísrael hafa lengi verið þeirrar skoðunar og hafa látið eins og Óslóarsamkomulagið sé ekki til. Hér er um mjög harða afstöðu hægri öfgamanna í Ísrael að ræða og ég vil inna ráðherrann eftir því hvort hann hyggist bregðast sérstaklega við á opinberum vettvangi eða láta í ljós skoðun ríkisstjórnar Íslands og íslenskra stjórnvalda á þessum ummælum.