tímabundið eftirlit á innri landamærum.
Virðulegur forseti. Í svari hæstv. utanríkisráðherra leið mér eins og ég væri komið eitt ár til baka. Þessi umræða um sérreglurnar var umræða í fyrra. Þessi umræða um allar þessar sérreglur og að geta fengið vernd í annað sinn á Íslandi var umræða í kringum frumvarp þáverandi dómsmálaráðherra, Jóns Gunnarssonar. Þá gerði ríkisstjórnin nákvæmlega ekki neitt. Sjálfstæðisflokkurinn ber ábyrgð á þessum málaflokki eins og öll ríkisstjórnin. Flokkur fólksins var með breytingartillögu þá sem var ekki hlustað á, m.a. til að taka á hinum gríðarlega fjölda sem kom frá Venesúela. Þessi dagskrárliður heitir óundirbúnar fyrirspurnir og spurningin er þessi: Í reglum Schengen-samstarfsins hefur frá upphafi verið að finna ákvæði sem heimilar tímabundna upptöku eftirlits á innri landamærum þátttökuríkjanna í ákveðnum tilvikum. Í dag nýta þessa heimild átta Schengen-ríki. Þetta eru ríki sem við berum okkur saman við. Þetta eru Svíþjóð, Danmörk, Noregur, Frakkland, Slóvenía, Ítalía, Pólland, Austurríki, og Þýskaland. Þrjú skandinavísku ríkin eru þarna og það er ekki leiðum að líkjast þar. Spurningin er þessi: Mun utanríkisráðherra íhuga og ætlar hann að beita sér fyrir því að við tökum upp innra eftirlit á okkar landamærum (Forseti hringir.) í ljósi þess gríðarlega fjölda sem er að koma til landsins og sækja um alþjóðlega vernd? Flest þessara ríkja gera það vegna rakanna um (Forseti hringir.) fyrirsjáanlega ógn og opinbera stefnu og innra öryggi. Það er alveg klárt mál að stefnu okkar í heilbrigðismálum, menntamálum og allri okkar stjórnarstefnu er ógnað vegna þess gríðarlega fjölda sem er að koma til landsins. Svo einfalt er það.