tímabundið eftirlit á innri landamærum.
Virðulegi forseti. Ég ætla að bæta við þeirri athugasemd að þegar um Úkraínumenn er að ræða þá skiptir máli að lönd eru almennt með sambærilegar reglur. Ef við skoðum bara þau lönd sem hafa náð góðum árangri í þessum efnum eins og í Danmörku þá hafa menn verið einmitt að leggja áherslu á að fækka hælisleitendum, eins og við erum núna að stefna að með því að þrengja skilyrði fyrir því að koma til landsins. Á meðan við höfum verið með þessar opnari reglur þá hefur áhuginn á því að láta reyna á íslensku reglurnar augljóslega verið mikill. Ég hafna því algerlega sem hv. þingmaður segir, en það er hins vegar rétt hjá honum að við erum í raun og veru komin eitt ár aftur í tímann vegna þess að fyrir akkúrat einu ári síðan stóð yfir málþóf út af tillögum Sjálfstæðismanna hér í þinginu. Það málþóf hafði staðið meira eða minna í heilt ár vegna þess að málið var í þriðja sinn tekið fyrir hér á þinginu.
Varðandi innri landamærin þá skil ég ekki alveg hvað hv. þingmaður á við. Ég tel að við eigum að gæta vel að okkar landamærum, ekki síst út af hættunni á því að hingað komi eftirlýstir aðilar eða glæpamenn sem hyggjast (Forseti hringir.) fremja afbrot. En ég sé ekki alveg hvað hv. þingmaður á við í tengslum við hælisleitendakerfið, hvað það er sem hann hyggst gera þegar hælisleitandi kemur að landamærunum. (Forseti hringir.) Ætlar hann bara að snúa honum við eða ætlar hann að taka á málinu efnislega? Það er auðvitað alltaf stóra spurningin. Og þegar málið (Forseti hringir.) kemur inn í kerfið, hversu hratt og örugglega við getum afgreitt tilhæfulausar umsóknir. (Gripið fram í: Gera það sama og Danir gerðu.)