Gjaldtaka á friðlýstum svæðum.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Orra Páli Jóhannssyni og hæstv. ráðherra fyrir að taka þessa mikilvægu umræðu hér í dag. Rúmlega 130 svæði á Íslandi eru friðlýst. Með því að friðlýsa svæði erum við að viðurkenna sérstöðu þeirra og tryggja að við skilum þeim til komandi kynslóða eins og við tókum við þeim. Friðlýst svæði eru eins mismunandi og þau eru mörg og öll eru þau jafn mikilvæg og með mismunandi aðdráttarafl. Umræðan hér í dag snýst um gjaldtöku á friðlýstum svæðum. Ég spyr: Á gjaldtakan á friðlýstum svæðum að halda í skefjum ágangi ferðamanna eða á hún að standa undir veittri þjónustu og mannvirkjum, svo sem eins og stígum og salernum? Öll viljum við viðhalda friðlýsingu svæðanna en þá þarf bæði að vakta viðkomandi svæði og þjóna þörfum gestanna. Af sumum gestum er ekki hægt að taka gjald, eins og ferfætlingum og fuglinum fljúgandi, en það er hægt að stemma stigu við þeim. Oft og tíðum er þó ástæða til að takmarka ágang fólks.
Virðulegur forseti. Ágangur ferðamanna um svæði getur verið vandamál. Hér vil ég sérstaklega nefna landtöku skemmtiferðaskipa inn á friðlýst svæði. Það fer eftir friðlýsingarskilmálum hvers svæðis hvernig þessu er háttað líkt og í friðlandinu Hornströndum þar sem gildir verndaráætlun sem m.a. bannar landtöku hópa sem eru fjölmennari en 51. Komur skemmtiferðaskipa til landsins hafa aukist verulega á undanförnum árum og þau hafa getu til að koma víðar við en vegakerfi landsins býður upp á. Það er brýnt að sveitarfélögin setji sér stefnu um hvernig þau ætla og vilja dreifa svo stórum hópum sem koma með einu slíku skipi því að undir eru friðlýst svæði og önnur viðkvæm svæði.
Virðulegi forseti. Það er mín skoðun að við eigum að verðleggja okkar auðlindir. Þá ættu komugjöld til landsins eða í þjónustu sem er á friðlýstum svæðum að vera kostur til að fjármagna rekstur og viðhald á friðlýstum svæðum.