Gjaldtaka á friðlýstum svæðum.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þessa góðu umræðu, frummælanda og hæstv. ráðherra. Umræður af þessum toga mættu vera sýnilegri og víðtækari að mínu mati. Þetta er okkar allra að fjalla um og mynda okkur skoðun á. Í viðskiptaheiminum er oft talað um, með leyfi forseta, „pricing is everything“; verðlagningin skiptir sköpum. Ég er á því að við höfum því miður það orðspor víða um heim að vera algerlega í efstu mörkum verðlagningar á ansi mörgum lykilþáttum sem tengjast ferðaþjónustu, þar með talið þegar kemur að bílaleigum, bjórnum eða áfengisgjöldunum öllum og nýverið erum við búin að innleiða gistináttagjald sem hefur nú verið á einhvers konar gálgafresti í nokkur ár og það tekur til skemmtiferðaskipanna líka. Ég held að við ættum ekki að hrapa að neinu í þessum efnum. Það er mjög gott að ræða þetta og að fólkið í landinu taki jafnvel þátt í því að móta stefnuna í meira mæli heldur en orðið hefur. Stefna í ferðaþjónustumálum til lengri tíma er afar mikilvægt verkefni og einhvers staðar er byrjað að vinna það. En án þess að vilja útiloka nokkuð vil ég deila þeirri skoðun minni að ég tel alls ekki rétt á þessum tímapunkti að fara að kynna hér komugjöld umfram það sem orðið er. Við erum með hundruð milljarða veltu í þessu ferðaþjónustubatteríi, nýtilkomna, og ég sagði það í störfum þingsins í gær: Göngum hægt um gleðinnar dyr í frekari gjaldtöku, förum okkur varlega og útilokum ekkert. En við skulum aðeins anda áður en við förum að kynna ný gjöld til sögunnar á Íslandi.