Gjaldtaka á friðlýstum svæðum.
Herra forseti. Þetta er góð umræða. Ástæða þess að ferðamenn koma til Íslands er fyrst og fremst náttúra landsins. Sumir gesta telja þessa náttúru vera óspillta en víða er það auðvitað fjarri sanni. Ofnýting, eldsumbrot og einfaldlega ömurlegt veður hefur víða spillt þessari náttúru, moldarflög og berir melar ásamt mólendi af verstu sort. En þetta þykir mörgum útlendingum forvitnilegt að skoða þrátt fyrir hátt verðlag. Ferðaþjónustan hefur vaxið ákaflega hratt síðasta áratuginn og það er kannski helst sjókvíaeldi sem hefur vaxið hraðar. En sjókvíaeldi greiðir nú stighækkandi gjald í sameiginlega sjóði sveitarfélaga og ríkis fyrir að nýta þá sameiginlegu auðlind sem firðir eru. Okkur hefur hins vegar ekki komið saman um hvernig eigi að taka gjald af nýtingu þeirra auðlinda sem íslensk náttúra er og er að hluta til í almannaeigu. Það blasir við að þrátt fyrir metnaðarfulla uppbyggingu þessarar ríkisstjórnar á ferðamannastöðum hringinn í kringum landið þarf víða að gera betur til að innviðir þoli aðsóknina. Mýmörg dæmi væri hægt að taka um þetta og ekki síst í Norðausturkjördæmi. Ég sé enga betri eða einfaldari aðferð til að tryggja að unnt sé að fara í þá uppbyggingu sem þarf og vernda þar með vörumerkið, ef svo má segja, fyrir troðningi en að taka komugjöld af þeim sem koma hingað. Það er svo bara útreikningslegt atriði að finna út úr því hversu hátt það á að vera. Það má auðvitað ekki vera svo hátt að það dragi snarlega úr eftirspurn og ekki svo lágt að það svari ekki kostnaði og umstangi að leggja það á. Einnig þarf að vinna slíkt í samráði við hagsmunaaðila og sveitarfélög, ásamt því að lýsa út í öll horn hvað varðar samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar og allt slíkt. En ég held að það sé ekkert flókið í sjálfu sér við þetta.