Gjaldtaka á friðlýstum svæðum.
Virðulegi forseti. Fjöldi ferðamanna á Íslandi er að ná sömu hæðum og árið 2019. Á þeim tíma var m.a. mikið rætt um það í þessari pontu að ferðaþjónustan væri að vaxa of hratt, vinsælar náttúruperlur væru farnar að láta á sjá og ekki tækist að byggja upp innviði fyrir ferðamenn nógu hratt og jafnvel að erlendir ferðamenn væru að ganga örna sinna úti í vegarkanti í stað þess að halda í sér fram að næsta almenningssalerni. Með öðrum orðum, ákveðnir áfangastaðir voru komnir að samfélagslegum og náttúrulegum þolmörkum. En hvað er til ráða? Í gegnum tíðina hafa verið ræddar ýmsar hugmyndir um að standa straum af kostnaði við vernd og uppbyggingu ferðamannastaða eins og náttúrupassi eða komugjald til landsins. Til staðar er Framkvæmdasjóður ferðamannastaða þar sem hið opinbera útdeilir fjármagni eftir öllum kúnstarinnar reglum. En enginn af þessum valkostum er til þess fallinn að stýra ásókn ferðamanna á vinsælustu ferðamannastaðina sem eru í mestri hættu á að fari yfir þolmörk sín. Sláum tvær flugur í einu höggi, tryggjum fjármögnun viðhalds, verndar og uppbyggingar ferðamannastaða og stýrum ágangi á viðkvæmar náttúruperlur með gjaldtöku á ferðamannastöðunum sjálfum. Um allan heim hefur þessi leið gefið góða raun og margar af stærstu og vinsælustu náttúruperlum og þjóðgarðar heims eru sjálfbær í orðsins fyllstu merkingu, bæði í umhverfislegu tilliti en einnig fjárhagslegu. Á Íslandi er einnig að finna dæmi um árangursríka gjaldtöku og uppbyggingu náttúruperla, bæði hjá einkaaðilum eins og í Bláa lóninu og Kerinu, en ekki síður hjá hinu opinbera eins og á Þingvöllum. Við megum draga mikinn lærdóm af því sem vel er gert og ættum að gefa heimamönnum á hverjum stað tækifæri til að stýra uppbyggingu og vernd sinna ferðamannastaða en ekki að þeir þurfi í sífellu að treysta á framlög úr opinberum sjóðum.