154. löggjafarþing — 77. fundur,  22. feb. 2024.

Gjaldtaka á friðlýstum svæðum.

[11:35]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka málshefjanda fyrir þessa umræðu sem er mjög mikilvæg. Varðandi þau atriði sem hér eru undir þá er mikilvægt að horfa til hins forna almannaréttar sem t.d. er minnst á í Jónsbók. Spurt er hvaða viðmið sé við hæfi að ráði því hvort hefja skuli gjaldtöku á friðlýstu svæðum á einstaka stöðum þess og þá er mjög mikilvægt að horfa til þess hvort verið sé að selja inn á þessi friðlýstu svæði, hvort ferðaþjónustuveitandi hafi tekjur af því að selja inn á friðlýst svæði með skipulögðum ferðum og leiðsögn. Þá tel ég eðlilegt að hið friðlýsta svæði fái þá hluta af kökunni, að það verði inni í þeim miða gjald til hins friðlýsta svæðis ef það er fjárhagslegur ávinningur af því að selja inn á svæðið. En ég tel hins vegar að ef almenningur er að fara inn á svæðið, einstaklingur á eigin vegum, á eigin bíl, gangandi eða hjólandi, þá ætti ekki að rukka hann. Þá ætti almannarétturinn að koma til sögunnar og það er frjáls för um landið hvað það varðar. Það er grundvallarmunur á. Ég veit til þess að á Nýja-Sjálandi er þetta haft að leiðarljósi. Ef einhverjir eru með atvinnustarfsemi tengda því að fólk komi inn á hið friðlýsta svæði þá er eðlilegt að greitt sé að hluta til hóflegt gjald fyrir þá þjónustu sem þar er veitt, fyrir klósett og annað slíkt. Það er eðlilegt að skoða komugjald en það getur verið flókið í útfærslu.

Það er líka mikilvægt að við stöndum vörð um þessa mikilvægu atvinnugrein sem ferðaþjónustan er. Við getum ekki tekið endalaust á móti fólki á Íslandi, ferðamönnum hér getur ekki fjölgað út í það óendanlega. Núna eru ferðamenn orðnir yfir 2 milljónir manna og við þurfum bráðum sennilega að fara að spyrja okkur að því hversu mikið álag landið þolir, ákveðin svæði. (Gripið fram í: Það er rétt.)

Varðandi hótelgjöld og annað slíkt þá voru sett lög (Forseti hringir.) hér fyrir áramót sem eru skref í rétta átt en við þurfum að vera í sífelldri skoðun hvað varðar gjaldtöku og vissulega eru þar friðlýst svæði og önnur svæði landsins undir.