Gjaldtaka á friðlýstum svæðum.
Virðulegi forseti. Af því að í ræðu hv. þm. Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur var nefnd stefna í ferðaþjónustu þá tilkynni ég það hér með að vinnu við ferðaþjónustustefnu til ársins 2030 og aðgerðaáætlun er lokið og hæstv. menningar- og ferðamálaráðherra hyggst leggja hana fram á vorþingi.
Almannaréttur og aðgengi að náttúru landsins er mikilvægur og er skýr í náttúruverndarlögum. Þar segir að almenningi sé heimil för um landið og dvöl þar í lögmætum tilgangi. Rétti þessum fylgir skylda til að ganga vel um náttúru landsins og það er skylda okkar að varðveita náttúru landsins. Gjaldtaka inn á friðlýst svæði getur stangast á við þessi réttindi. En til þess að tryggja að gengið sé vel um náttúruna er mikilvægt að byggja upp aðstöðu eins og göngustíga og beina umferð ferðamanna frá mjög viðkvæmum svæðum og/eða hættulegum. Ef rétt er á spöðunum haldið er hægt að tryggja að þessar sértekjur standi undir rekstri á þjónustunni. Uppbyggingu innviða, líkt og bílastæði o.fl., ættu þeir að borga sem nota. Það er líka mikilvægt að byggja upp innviði á friðlýstum svæðum áður en ágangurinn verður orðinn svo mikill að skaðinn er skeður. En svo vil ég kannski líka nefna hér að það er skortur á þjónustu á löngum vegaleiðum eins og t.d. í Ísafjarðardjúpi þegar 200 kílómetrar eru á milli þéttbýlisstaða og þjónustustaða. Farið var í það tilraunaverkefni hjá Vegagerðinni að staðsetja salernisaðstöðu á nokkrum stöðum og var því vel fagnað, en ekki hefur verið framhald á því verkefni. Þetta er mikilvægt og við þurfum að skoða þetta líka. Við þurfum að sinna náttúrunni í sjálfum okkur á ferðum okkar um landið og á löngum köflum er það erfitt þegar ekki er salernisþjónusta til staðar.
Virðulegi forseti. Mikilvægt er að halda og vakta þjónustuinnviði allt árið á þeim stöðum sem minna eru sóttir. Nefni ég t.d. staði á Vestfjörðum. Það er mikilvægt að þessir staðir séu opnir og þjónustaðir til þess að dreifa ferðamönnum um landið því að maður tekur eftir því að það er alltaf að aukast að ferðamenn komi á fáfarnari svæði og lenda þá kannski í ógöngum.