Gjaldtaka á friðlýstum svæðum.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmönnum og hæstv. ráðherra fyrir þessa góðu umræðu. Það er augljóst að við getum rætt þetta meira og fleiri anga þessa máls. Hv. þm. Halla Signý Kristjánsdóttir kom inn á það að víst er unnið að stefnumótun í ferðaþjónustu og hefur bara verið töluverð vinna þar í gangi af hálfu þessarar ríkisstjórnar. Ég vil bara skora á hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur að eiga orðastað í einhverju formi við ferðamálaráðherrann um þessi mál og ekki munum við sem hér sitjum skorast undan því að taka þátt í þeirri umræðu. Öðrum hv. þingmönnum vil ég líka þakka fyrir ýmis mjög mikilvæg atriði sem hafa verið dregin fram, svo sem almannarétturinn sem á sér ævafornar rætur, ekki bara í íslenskri löggjöf heldur á Norðurlöndunum öllum. Hann þarf alltaf að horfa á að mínu mati í samhengi við gjaldtöku á friðlýstum svæðum, perlanna okkar sem við eigum saman en deilum líka með okkar gestum. Þá vil ég taka undir með hæstv. ráðherra sem segir að verndarhagsmunir svæðanna verði að ráða stefnumótuninni en ekki gjaldtakan. Þar erum við fyllilega sammála. Ég held að um margt getum við gert betur í því að forvinna og huga að mikilvægi skilningsins á verndarhagsmunum í samhengi gjaldtökunnar, vegna þess að við eigum alveg dæmi þess að ráðist hafi verið í uppbyggingu á svæðum og okkar perlum og gengið ansi freklega í að ryðja land undir manngerð bílastæði til að mynda. Þetta er eitthvað sem við verðum að hafa í huga þegar við erum að leggja línurnar í þessum málum og ég tek heils hugar undir með ráðherra í þessu. Þá finnst mér einboðið og augljóst að við ræðum hugmyndir um komugjald á þessum vettvangi undir einhverjum öðrum forsendum því að það eru augljóslega skiptar skoðanir um það, sum sjá í því mikil tækifæri og önnur ekki. En ég held að við höfum ekki sagt okkar síðasta í því. Ég vil að endingu, virðulegi forseti, þakka hv. þingmönnum og hæstv. ráðherra enn og aftur fyrir þessa mjög svo gagnlegu umræðu.