154. löggjafarþing — 77. fundur,  22. feb. 2024.

skýrsla hæstv. utanríkisráðherra um framkvæmd EES-samningsins.

[11:47]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég verð að viðurkenna að það urðu mér vonbrigði að sjá dagskrá þingfundar í dag þegar hún loksins leit dagsins ljós. Á fundi forseta með formönnum þingflokka hafði fyrr í vikunni verið lögð fram áætlun um þinghaldið og þar var á dagskrá skýrsla hæstv. utanríkisráðherra um framkvæmd EES-samningsins sem ég hafði gert ráð fyrir að geta rætt hér á þessum þingfundi í dag og sannast sagna að vonast til þess og undirbúið mig undir það. Mig langar til að inna hæstv. forseta eftir því hvenær hún hyggist setja þessa skýrslu á dagskrá þingsins og hvort þess verði langt að bíða. Við vitum öll að næsta vika er svokölluð kjördæmavika í þinginu. Þetta er mál sem er mjög mikilvægt, ekki síst í ljósi þeirrar umræðu sem hér hefur átt sér stað á undanförnum vikum og mánuðum um gagnsleysi EES-samstarfsins af hálfu sumra þingmanna sem hér í þessum sal sitja. Þannig að það er pólitískt mikilvægt að forseti setji þessa skýrslu á dagskrá þingsins og að hún verði rædd hér á hinu háa Alþingi.