skýrsla hæstv. utanríkisráðherra um framkvæmd EES-samningsins.
Virðulegur forseti. Þegar ég og hæstv. forseti sem situr nú á forsetastóli ræddum þingstörfin fram undan í vikunni þá var einmitt á dagskrá að hafa skýrslu utanríkisráðherra um EES og fór af stað undirbúningur gagnvart því líka af hálfu þingfólks sem verður ekki endilega hér næst þegar þetta mál verður kannski sett á dagskrá og kannski tekið út af dagskrá aftur. Mér þykir miður að þessi ófyrirsjáanleiki sé alltaf til staðar í dagskrá þingsins og að það sé ekki einu sinni nokkurra daga fyrirvari á því að dagskránni sé breytt, sérstaklega þegar eitthvað hefur legið fyrir jafn lengi og þetta hefur legið fyrir. Það væri óskandi að það væri hægt að standa betur að þessum málum og ég hef velt fyrir mér hvers vegna hæstv. utanríkisráðherra þarf trekk í trekk að fresta sínum skýrslum, hvort hann hafi bara ekki verið tilbúinn í ráðuneyti sínu með þetta, hvort það sé kannski ástæðan fyrir því að við erum að fresta þessu frekar en nokkuð annað.(Forseti hringir.) Ég væri alla vega til í að heyra skýringar á því hvers vegna við erum ekki að fara að eiga þessa mikilvægu umræðu nú.