skýrsla hæstv. utanríkisráðherra um framkvæmd EES-samningsins.
Virðulegi forseti. Ég ætla að koma hér upp og fjalla aðeins um dagskrá þingsins og lýsa því yfir hvað ég er ósammála þeim þingmönnum sem hingað hafa komið upp. Vissulega er umræðan mikilvæg varðandi framkvæmd EES-samningsins, ég tek undir það, en hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir kom hér upp áðan og taldi afar mikilvægt í ljósi umræðna síðustu vikur að taka þessa umræðu um framkvæmdina á EES-samningnum fyrir. Fyrir mitt leyti og ef maður horfir til umræðunnar síðustu daga og vikur hér í samfélaginu þá myndi ég telja mun mikilvægara að taka útlendingamálið til umræðu hér í dag.
Mig langar bara að leggja til hér, fyrst þingmönnum finnst það afar mikilvægt að taka þessa umræðu við ráðherra, hvort það sé ekki hreinlega hægt að bæta henni bara aftan við dagskrána, aftan við umræðu um útlendingamál. Þá náum við þessu hvoru tveggja í dag.