tímabundinn rekstrarstuðningur vegna náttúruhamfara i Grindavíkurbæ.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og tek undir með honum að það blasir við að úrræðin þurfa að vera fjölbreytt og sniðin að ólíkum gerðum fyrirtækja, litlum, stórum, einkafyrirtækjum og þessum risastóru. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður bendir á að það er auðvitað mjög öflugt atvinnulíf í Grindavík og að því búa Grindvíkingar og um það viljum við auðvitað standa vörð eins og mögulegt er. En ég vil bara ítreka þá skoðun mína að það er augljóst að við erum hér að taka eitt skref af mörgum þegar kemur að aðstoð við íbúa og fyrirtæki í Grindavík. Ég kom upp vegna þess að mér fannst ákallið í umsögn atvinnuteymis Grindavíkurbæjar mjög skýrt og vel rökstutt og ég vil kannski — ég veit að ég þarf ekki að brýna hv. þingmann í því máli en mér finnst það vera leiðarljós fyrir okkur til að vinna eftir áfram í þessu brýna máli.