tímabundinn rekstrarstuðningur vegna náttúruhamfara i Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu og fyrir gott samstarf í nefndinni varðandi þetta mál og svo sem líka almennt. Ég vildi ræða aðeins við hv. þingmann um áframhaldandi viðbragð. Ég bara náði því ekki þegar ég hafði einnar mínútu andsvararétt við ræðu hv. þm. Steinunnar Þóru Árnadóttur að bregðast við ræðu hennar gagnvart því sem væri búið að gera fyrir atvinnulífið í Grindavík. Mér fannst hún ekki vera alveg viss um að hún hefði talið upp öll þau úrræði sem nú þegar væri búið að fara í sem tengdust atvinnustarfseminni en ég held einmitt að hún hafi talið þau öll upp, þ.e. að það hafi verið þessi frestun á opinberum gjöldum, launastuðningur og síðan þetta frumvarp. Ég veit ekki til þess, hv. þingmaður kannski man það betur en ég og leiðréttir mig ef mig misminnir, að það séu einhver önnur úrræði sem snúa beint að atvinnulífinu í Grindavík sem við höfum verið að afgreiða hér undanfarið. Ég held ekki. Það er þess vegna sem við erum búin að vera að draga það svolítið inn í þessa umræðu að það þurfi að gera meira og gera betur. Mér finnst mjög mikilvægt að við fáum ráðherra þessa málaflokks strax á okkar fund að lokinni kjördæmaviku til að fara yfir hvað stendur til að gera vegna þess að mér hefur fundist það mjög óskýrt hvort það standi til að koma einhvern veginn til móts við fyrirtæki í Grindavík sem eru með atvinnuhúsnæði þar og þá kannski sérstaklega fjölskyldufyrirtækin sem eru kannski með allt sitt undir atvinnuhúsnæði þar. Ég veit að hv. þingmaður var í þessum pólitíska samráðshóp um Grindavík og velti fyrir mér hvort þessi angi málsins hafi verið ræddur af einhverju viti þar vegna þess að mér finnst algjörlega óskýrt hvort það eigi að gera eitthvað í þessu yfir höfuð. Veit hv. þingmaður eitthvað meira um það heldur en sú sem hér stendur?