kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Fyrir nefndinni komu fram allmörg sjónarmið um þetta atriði, hlutfallið og það verð sem einstaklingum býðst að selja eign sína á til félagsins. Það komu fram allmörg sjónarmið. Þá ber að taka það fram sem ég gat um í minni framsöguræðu og er í uppleggið í þessu frumvarpi að frumvarpinu er ekki ætlað að bæta tjón einstaklinga vegna þeirra atburða sem hafa orðið eða kunna að eiga sér stað í náinni framtíð í Grindavík. Það er ekki markmið þessa frumvarps. Markmiðið er að veita íbúum Grindavíkur skjól frá þeirri óvissu sem nú blasir við, þeirri óvissu sem helgast af því að þar eru eignir þessa fólks og heimili sem hafa ekki orðið fyrir tjóni en ástandið í bænum er samt með þeim hætti að það er óljóst hvernig búsetu verður háttað til framtíðar eða hvenær. Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur ekki metið allar eignir. Umfang tjónsins liggur ekki fyrir og hvort það lendi á náttúruhamfaratryggingum. Þess vegna kemur þetta til til að gæta að jafnræði, já, vissulega gagnvart því fyrirkomulagi sem gildir um altjón í náttúruhamfaratryggingum. Þegar verið er að ráðast í aðgerðir sem þessar er lagt til grundvallar almennt viðmið út frá þessu markmiði laganna og þá kann að vera að það henti ekki öllum. Það er ljóst og það held ég að hafi legið fyrir. Þessi sjónarmið hafa komið fram fyrir nefndinni við umfjöllun málsins. (Forseti hringir.) En til að svara hv. þingmanni þá tel ég markmið frumvarpsins nást mjög vel með því sem er sett hér fram.