kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir yfirferðina og jafnframt fyrir samstarfið í nefndinni. Við í Samfylkingunni gengum inn í samstarf um þetta frumvarp opin og full samstarfsvilja vegna þess að þegar við stöndum frammi fyrir svona stóru samfélagslegu verkefni er það okkar sannfæring að það leysist best þegar við leggjum öll saman. En, forseti, það þýðir um leið að hver og einn fær ekki allt sem hann vill og þess vegna er ég með fyrirvara á þessu nefndaráliti, ekki vegna þess að ég ætli að leggjast gegn frumvarpinu heldur þvert á móti mun ég, og við í Samfylkingunni, styðja það. En mig langar til að spyrja hv. þingmann út í 95% hlutfallið af brunabótamati. Ég er sammála því að það er eðlilegt að miða við brunabótamat þegar við erum á hamfarasvæði þar sem náttúruhamfaratrygging miðar við brunabótamat í sínum viðmiðum nema bara við ætluðum að aftengja hamfaratryggingar og taka þær bara út úr þeim hamförum sem ganga yfir Grindavík. Mér finnst eðlilegt að miða við brunabótamatið en ég hefði gjarnan viljað hafa það 98% vegna þess að Náttúruhamfaratrygging Íslands gerir ráð fyrir 2% eigin áhættu ef hús verður undir hrauni eða brennur til grunna og mér hefur fundist eðlilegt að miða við 98% í staðinn fyrir 95%.
Ég vil biðja hv. þingmann um að fara yfir rökin fyrir 95%. (Forseti hringir.) Er það út af förgunargjaldi? En mun þá ekki eignarhaldsfélagið geta tekið innréttingar og selt upp í það o.s.frv.? (Forseti hringir.) Hvað vill hv. þingmaður segja um þetta?
(Forseti (ÁsF): Ég minni þingmenn á að ræðutíminn er takmarkaður við tvær mínútur.) menn með því.