kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er sjálfsagt að reifa hvernig þetta er til komið í framhaldi af andsvörum mínum við hv. þm. Guðbrand Einarsson. Þegar altjón verður þá greiða náttúruhamfaratryggingar út frá brunabótamati og það er rétt sem hv. þingmaður segir hér, að frádreginni 2% eigin áhættu og svo förgunargjaldi. Það er þó lögð til sú breyting í frumvarpinu, ég kom inn á það, að jafna stöðu þeirra sem hafa þegar orðið fyrir altjóni og geta þá áfram framselt fasteignina til félagsins af því að það er óljóst hvort í þessum tilvikum — og ég bara þekki ekki til þess, uppgjör við þessa einstaklinga við Náttúruhamfaratryggingu Íslands hefur ekki farið fram. Að því leytinu til er tryggt í frumvarpinu að staða einstaklinga, hvort sem þeir hafi orðið fyrir tjóni eða ekki, sé sú sama. Það er lykilatriði að gæta að þessu innbyrðis jafnvægi. Með 95% þá er, eins og ég skil þetta, allt óljóst með það hvort fasteignir verði fyrir frekara tjóni og hvort það komi til þess að það þurfi að farga fasteignum og þess vegna er þetta lagt til grundvallar með þessum hætti. Ég kom inn á það í andsvari við hv. þm. Guðbrand Einarsson að ef annað markmið eða annar tilgangur laganna væri að bæta tjón þá myndi ég telja skiljanlegt að það hefði verið höfð önnur nálgun. En hver hinn endanlegi sannleikur í þessu efni verður er erfitt að svara. Hér er um fordæmalausa aðgerð að ræða og ég tel (Forseti hringir.) að miðað við markmið frumvarpsins og tilgang þá sé upplegg frumvarpsins vel til þess fallið að því verði náð.