kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það var svolítið djúpt á þessu, að finna þennan kafla sem ég var að vísa í sem vakti ákveðnar áhyggjur hjá mér, en þetta er á bls. 21 í frumvarpinu fyrir ofan kafla 6.5. Þar stendur, með leyfi forseta:
„Eignasafn NTÍ, án endurtrygginga, nam tæplega 60 milljörðum kr. fyrir jarðhræringarnar í Grindavík. Mögulegt fjárframlag frá NTÍ hefur óneitanlega áhrif á viðnámsþrótt sjóðsins gagnvart frekari áföllum.“ — Og nú kemur setningin sem ég hnýt um: „Að svo miklu leyti sem skynsamlegt er talið að byggja sjóðinn upp að nýju, komi til fjárframlags frá honum, þá má líta á fjárframlög frá sjóðnum sem ígildi fjárframlaga úr ríkissjóði.“
Ég er að reyna að lesa á milli línanna hvað þessi setning þýðir nákvæmlega en mér finnst eins og það sé verið að gefa í skyn að mögulega sé ekki talið skynsamlegt að byggja sjóðinn aftur upp að nýju eftir að við höfum tekið úr honum jafnvel allt að 15 milljarða, fyrir utan tjónið sem hann er nú þegar að bæta. Ég velti því fyrir mér hvort þetta sé réttur skilningur, hvort það sé verið að velta því fyrir sér hvort það sé skynsamlegt að byggja þennan mikilvæga sjóð upp að nýju eður ei.