kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hennar andsvar. Já, þetta er réttlætismál á milli kynslóða eins og hún réttilega segir. Það er slæmt að skilja unga fólkið okkur eftir sem er að hefja sinn búskap, er kannski búið að stofna fjölskyldu, búið að koma sér fyrir uppi í Grindavík og á góða möguleika á ágætisafkomu og ágætislífi þar miðað við stöðuna eins og hún var fyrir 10. nóvember. En nú er allt farið. Nú er allt hrunið. Þá veltir maður fyrir sér möguleikunum, fyrir utan það andlega ástand sem fólk er að upplifa bara vegna fjárhagsáhyggna, óvissu um framtíðina, búið að missa vinnuna; hvar á ég að koma barninu mínu í skóla, ég get ekki keypt mér hús fyrir þann pening sem ég fæ út úr þessu. Við hljótum að þurfa að spyrja okkur þessara spurningar af því að við erum ekki bara að horfa á einhverjar tölur á blaði. Við erum að tala um þúsundir einstaklinga sem eiga þarna í hlut. Mér finnst það vera mergur málsins: Hvernig ætlum við að ná utan um hópinn sem á um sárt að binda eftir þessar miklu hamfarir sem dunið hafa yfir í Grindavík? Það hlýtur að vera meginmarkmið okkar hér á þingi og vera okkar ábyrgð.