154. löggjafarþing — 77. fundur,  22. feb. 2024.

kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.

704. mál
[15:32]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Guðbrandur Einarsson) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við þurfum auðvitað alltaf að spyrja okkur að því hvaðan peningarnir eigi að koma. Á að taka lán, á að auka tekjur með skattheimtu, á að hagræða? Ríkisstjórnin hefur valið þá leið að fara inn í náttúruhamfaratryggingarsjóð, sem í eru ekki hennar peningar, og sælast þar í 15 milljarða. Þetta hefur ríkisvaldið verið að gera og ekki bara gagnvart náttúruhamfaratryggingarsjóði, sem það ætlar að taka 15 milljarða út úr núna. Ég þekki það hafandi setið í stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs í mörg ár að hann var tæmdur inn í ríkissjóð og eftir situr stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs og bíður bara eftir úthlutun frá fjármálaráðherra, hvað sé til skiptanna í atvinnuleysistryggingar á Íslandi. Þetta er eitthvað sem við hljótum að gera athugasemdir við. Ég er reyndar svo upptekinn af hinni hliðinni á málinu, frekar en fjármögnuninni, en við getum líka nefnt að það gæti verið betra fyrir ríkið að taka innlent lán heldur en erlent lán. Þá er minni hætta á að við séum að auka peningamagn í umferð. Það er þá kannski verið að taka einhverja peninga sem annars hefðu farið í umferð annars staðar en með því að taka erlent lán erum við að sjálfsögðu að bæta peningum í pottinn. Ég held því að það væri rétt að skoða þann möguleika, að í stað þess að taka erlent lán myndum við taka innlent lán. En mér finnst skrýtið að við séum að nota náttúruhamfaratryggingarsjóð með þessum hætti af því að við vitum ekki heldur hver endirinn verður á þessum hamförum og við vitum heldur ekki hvort það verða aðrar hamfarir sem fara í gang á sama tíma. Það er komið tjón þarna upp á 10–15 milljarða nú þegar, 15 milljarðar út úr sjóðnum, og hann á 60. Maður aður veltir fyrir sér: Í hvaða stöðu verður náttúruhamfaratryggingarsjóður í framhaldinu?