kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.
Herra forseti. Þetta frumvarp sem við ræðum hér er fyrst og fremst komið fram vegna ákalls Grindvíkinga sjálfra. Það ákall kom skýrt fram á fjölmennum íbúafundi í janúar sem haldinn var í Laugardalshöllinni. Ég tel að sá fundur hafi opnað augu allra þeirra sem með honum fylgdust við hvað Grindvíkingar eru að glíma og hvernig óróinn innra með þeim hefur byggst upp alveg frá því að jarðhræringar hófust árið 2020 með jarðskjálftahrinu og þar til hamfarirnar dundu yfir 10. nóvember og svo aftur 14. janúar. Og enn er beðið eftir gosi. Það mun gjósa fyrr en seinna. Það sýna allar mælingar okkar færustu sérfræðinga en hvar kvikan ryður sér braut hins vegar er ekki vitað eða hvenær.
Grindvíkingar þurfa á stuðningi okkar að halda. 1% íbúa landsins sem Grindvíkingar eru þurfa stuðning hinna 99%. Þau frumvörp sem við ræðum og afgreiðum hér í dag verða ekki þau einu sem Alþingi mun afgreiða til að koma til móts við Grindvíkinga. Ég hlustaði á hv. þm. Vilhjálm Árnason í viðtali við Rauða borðið á Samstöðinni í vikunni. Þar gaf hann okkur innsýn í þau mismunandi áreiti sem dynja á Grindvíkingum þessa dagana og hafa dunið á þeim frá því í nóvember þegar íbúar þurftu að yfirgefa heimili sín. Grindvíkingar þurfa að finna svör við alls konar spurningum, svo sem: Er vatn á húsinu mínu? Hvenær kemur kalt vatn í bæinn? Hafa frostskemmdir orðið á húsinu mínu? Hvenær fæ ég að fara til að ná í dótið mitt? Fæ ég sendiferðabíl? Hver skutlar börnunum í skólann og í frístund á meðan? Hvenær eru æfingar krakkana og hvar? Er ég að fara að gera leigusamning eða ætla ég að kaupa íbúð? Hvenær klárast frumvarpið um uppkaupin? Fæ ég aðgengi að húsinu ef ég tek tilboði ríkisins? Þarf ég að fara Suðurstrandarveginn inn í bæinn eða eru aðrar leiðir færar? og margt fleira. Ég hvet hv. þingmenn til að hlusta á viðtalið við hv. þm. Vilhjálm Árnason sem var í fyrradag, ef ég man rétt, á Samstöðunni. Maður áttar sig svo vel á, eftir að hafa hlustað á hann, hvað það er sem dynur á Grindvíkingum. Það eru svo margar stórar ákvarðanir sem þau þurfa að taka, þreytt, uppgefin og undir miklu álagi.
Herra forseti. Það er von mín að með aðgerðum stjórnvalda verði áhyggjum létt af Grindvíkingum eins og hægt er með þessu frumvarpi og þeim sem munu koma síðar ef að líkum lætur. Frumvarpið um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík er um að losa íbúa Grindavíkur undan yfirvofandi áhættu og fjármagnsþrengingum af því að eiga húsnæði í bænum líkt og farið er yfir í greinargerð með frumvarpinu. Þar með verður þeim jafnframt gert kleift eins fljótt og kostur er að finna sér aðra búsetu sem kann að þurfa að vera til næstu ára eða jafnvel frambúðar.
Framsögumaður málsins hefur farið vel yfir helstu atriði nefndarálitsins og þær breytingartillögur sem við í nefndinni leggjum til. Þær eru allar til bóta, ekki síst sú breyting að Grindvíkingar hafi tíma til áramóta til að ákveða hvort þeir vilji selja húsið sitt til eignarhaldsfélagsins á þeim kjörum sem þar bjóðast. Einnig að forkaupsrétturinn verði í þrjú ár en ekki tvö. Það að Grindvíkingar allir verði meðhöndlaðir sem fyrstu kaupendur þegar greiðslubyrðarhlutfall er metið og hámark veðsetningarhlutfalls skiptir líka máli og að fólk sem á búseturétt fái sambærileg kjör og íbúðareigendur. Skýrleiki varðandi rekstur eignaumsýslufélagsins er einnig nauðsynlegur. Á þessu er öllu tekið í nefndarálitinu og í breytingartillögunum.
Það voru margar umsagnir sem bárust bæði í samráðsgátt stjórnvalda og til efnahags- og viðskiptanefndar og persónulega bárust mér líka margar ábendingar. Við sumum þeirra er brugðist með þessu frumvarpi en sannarlega ekki öllum. Þetta frumvarp lýtur að heimili fólks þótt lögheimilisskilyrðin verði túlkuð rúmt vegna mismunandi tímabundinna aðstæðna fólks. Frumvarpið á ekki við um aðrar eignir einstaklinga eða lögaðila. Á þeirra málum verður tekið seinna. En það liggur á þessu frumvarpi til þess að uppfylla það markmið sem þar er sett fram. Markmiðið er afmarkað og á við heimili fólks.
Þegar þjóð stendur frammi fyrir samfélagsverkefni af þeirri stærðargráðu sem við Íslendingar gerum nú er farsælast að gera það í þverpólitísku samstarfi. Ég tók þátt í þverpólitísku samstarfi um þetta frumvarp fyrir hönd Samfylkingarinnar og ég er þess fullviss að frumvarpið batnaði til muna við það samstarf og einnig í þverpólitísku samstarfi innan efnahags- og viðskiptanefndar. Ég viðurkenni þó að ekki var komið til móts við allar mínar óskir um breytingar en glettilega margar þó.
Tvennt vil ég nefna sem ástæðu þess að ég skrifa undir nefndarálitið með fyrirvara. Í fyrsta lagi hefði mér fundist réttlátara að miða við 98% af brunabótamati í stað 95%. Náttúruhamfaratrygging gerir ráð fyrir 2% eigin áhættu ef t.d. hús fer undir hraun. Þá væri 98% útgreiðsla í tilviki uppkaupa húsnæðis í Grindavík réttlátari en 95% þó að ég skilji vel sanngirnina í því að hafa sem sambærilegust viðmið og eru í náttúruhamfaratryggingum, en þar er einnig gert ráð fyrir að eigandi húsnæðis beri kostnað af förgun húsa sem ekki fara undir hraun eða brenna til grunna. Við í Samfylkingunni munum þó ekki greiða atkvæði gegn 95% hlutfallinu þótt við gerum athugasemdir við það hlutfall og bendum á að túlka ætti í þeim efnum Grindvíkingum í hag, enda munu þeir, þrátt fyrir þetta frumvarp, flestir tapa miklum fjármunum vegna hamfaranna. En ég er sátt við þann útgangspunkt frumvarpsins að miða við brunabótamat líkt og hamfaratryggingar miða við. Ef við ætluðum að segja: Við ætlum að bæta öllum allt það tjón sem hugsanlega gæti orðið í þessum hamförum, þá erum við búin að segja að við þurfum ekki hamfaratryggingar. Þá tekur ríkið þetta bara yfir og við aftengjum hamfaratryggingar og lögin um þær. Það held ég að sé ekki skynsamlegt að gera. Frekar eigi að fara þá leið að bjóða Grindvíkingum sem búa við mikla óvissu að fá svipuð kjör fyrir sínar eignir og þau hefðu fengið ef þau hefðu þurft að skipta við hamfaratryggingar nema bara það að samkvæmt því sem okkur er sagt á þetta ganga fyrr fyrir sig þegar búið er að stofna félagið og koma umsýslunni í gang.
Hinn fyrirvarinn er um fjármögnun eignarhaldsfélagsins og einkum vegna óvissu um áhrif hennar á stöðu Náttúruhamfaratryggingar Íslands. Það verkefni bíður svo þingheims að glíma við efnahagslegar afleiðingar sem af frumvarpinu verða. Í þeim eftirleik munum við sennilega vilja fara ólíkar leiðir eftir pólitískum áherslum.
Herra forseti. Við þurfum og eigum að vinna saman að lausnum fyrir fólkið í Grindavík og síðan fyrir fyrirtækin og rekstur bæjarins. Það er samdóma álit okkar færasta fólks að það muni enginn búa í Grindavík næstu misserin óhultur. Jafnvel þó að nú megi vinna í Grindavík og fólk geti búið í húsunum sínum, allt á eigin ábyrgð, er Grindavík ekki öruggur bær og líkt og almannavarnir og fleiri hafa bent á eiga hvorki börn né gæludýr að dvelja í bænum.
Ég hef áður vitnað í viðtal á Sprengisandi á Bylgjunni þar sem Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri útgerðarfélagsins Vísis í Grindavík, talaði fyrir því að sveitarfélögin á Suðurnesjum sameinuðust í eitt. Hann lagði til að við Suðurnesjamenn stækkuðum heimavöllinn. Þá þyrftu Grindvíkingar ekki að flytja í annan bæ heldur bara á milli hverfa í sveitarfélaginu Suðurnes. Einhvern veginn virðist þessi lausn blasa við í erfiðri stöðu. En jafnvel þó að ekki verði af formlegri sameiningu er skynsamlegt að sveitarfélögin á Suðurnesjum vinni þétt saman að því að halda utan um grindvískt samfélag. Sveitarstjórnir hinna bæjanna á Suðurnesjum hafa bent á að nægar lóðir séu til staðar fyrir íbúðir. Uppbygging einingahúsa að fyrirmynd Eyjabyggða væri upplögð. Hefð er fyrir náinni samvinnu sveitarfélaganna á Suðurnesjum í gegnum samband sveitarfélaganna. Við eigum saman Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum og verkefni á vegum Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, svo dæmi séu tekin. Þjónustan er samtengd nú þegar. Flestir Grindvíkinga munu ekki flytja heim í bráð. Þau þurfa að koma sér fyrir annars staðar og skapa eins góðan stöðugleika og mögulegt er fyrir líf sitt. Ef stefnan yrði tekin á sameiningu sveitarfélaganna fjögurra á Suðurnesjum væri hægt að blása Grindvíkingum von í brjóst og trú á framtíðina. Rekstur Grindavíkurbæjar er augljóslega í uppnámi og ýmis praktísk mál mætti leysa með sameiningu sveitarfélaganna. Ég er þeirrar skoðunar, forseti, að það sé bæði skynsamlegt og hagkvæmt að byggja upp hverfi í hinum bæjunum á Suðurnesjum þar sem Grindvíkingar hafa forgang. Efnahagslega er það skynsamlegt en einnig svo að samfélagið í Grindavík geti haldið saman og möguleikarnir á að halda utan um þau öll aukast. Sumir þeirra vilja og geta kannski flutt heim til Grindavíkur eftir einhvern tíma og þá eiga þau að hafa það val.
Með frumvarpinu sem væntanlega verður að lögum í dag er hugmyndin að gera Grindvíkingum kleift að búa í haginn fyrir framtíðina. Það þarf að finna nothæfa lausn fyrir fyrirtækin og þá einstaklinga sem ekki falla undir lausnir þessa frumvarps en það gerum við á næstu dögum og vikum. Hamfarirnar í Grindavík kalla á að Suðurnesjamenn allir taki höndum saman. Ráðherrar og þingmenn þvert á flokka eiga einnig að taka höndum saman og leggja fram lausnir sem duga fyrir fólkið, fyrirtækin og samfélagið í Grindavík.
Herra forseti. Að lokum vil ég þakka allri hv. efnahags- og viðskiptanefnd fyrir samstarfið og jafnvel þó að einn fulltrúi nefndarinnar hafi síðan ákveðið að vera ekki með og leggja fram breytingartillögur og sérstakt nefndarálit þá leyfi ég mér að segja að umræðan var góð og lausnamiðuð um markmið frumvarpsins og gaumgæfilega farið yfir stöðu þeirra sem gætu nýtt sér þá leið sem frumvarpið boðar. Við vitum að það eru sumir sem fara betur út úr því heldur en aðrir en það er bara ekki hægt að slá einni reglustiku yfir svo fjölbreyttan hóp þó að við höfum gert okkar besta til að mæta þörfum flestra. En þegar þetta frumvarp hefur orðið að lögum og eignaumsýslufélagið fer að vinna sína vinnu í samskiptum við fólkið í Grindavík þá eru það auðvitað Grindvíkingar sem meta það svo að það sé betra í stöðu þeirra að taka tilboði félagsins eða ríkisins í gegnum félagið. Ef þeir meta það þannig að það sé betri staða en að bíða og sjá þá munu þeir nýta sér þetta tilboð en annars ekki.
Ég á von á því að það komi upp í framkvæmdinni eitthvað sem við sáum ekki fyrir. Þá treysti ég því að við getum tekið á því, annaðhvort með reglugerð eða með því að smíða frumvarp til að taka á því sem við sjáum ekki fyrir núna. En Samfylkingin mun styðja þetta frumvarp. Ég hef farið yfir fyrirvarann sem ég gerði og þakka aftur fyrir gott samstarf í nefndinni.