kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið, þetta er sannarlega fróðlegt. Það sem er svo sérstakt við þessar aðstæður sem við erum í núna, eins og hefur verið bent á, er að þetta er t.d. ólíkt þeim aðstæðum sem við lentum í í Covid. Þótt sannarlega hafi verið gríðarleg óvissa þar þá var hún annars eðlis en núna að því leytinu til að við höfum kannski minni ástæðu til að ætla að þetta líði hjá eftir hálft ár eða eitt ár og nokkra vissu um að svo verði ekki, þó að auðvitað vonum við að þegar aðeins lengra líður fram verði þetta í lagi. En óvissan er mikil.
Hin spurningin sem mig langaði til að beina til hv. þingmanns varðar aðra gagnrýni sem hefur komið fram á þetta mál, og hv. þingmaður nefndi sömuleiðis, og það er þetta skilyrði um lögheimili. Ef ég skil það rétt voru rökin fyrir því að setja það skilyrði fyrst og fremst þau að ætlunin sé að byrja á því að bjarga heimilum fólks þar sem það býr. Það sem mig langar til að spyrja hv. þingmann að, og ég er kannski að fara fram á að hún dragi fram einhverja spákúlu, er: Hefur hv. þingmaður trú á því að það verði gengið lengra samt sem áður? Þarna er náttúrlega verið að taka fyrsta skrefið. Hver heldur hv. þingmaður þá að næstu skref verði og hefur hún raunverulega trú á því að þau komi fljótlega?