154. löggjafarþing — 77. fundur,  22. feb. 2024.

kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.

704. mál
[16:08]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mig langaði aðeins að byrja á að snerta á því sem hv. þingmaður endaði á, þ.e. áhrifum á húsnæðiskerfið og verðbólgu og annað í sambandi við þetta. Nú vitum við að við þurfum að fara í þessar aðgerðir og við erum held ég öll sammála um að það verði að fara í þessar aðgerðir. En við erum kannski ekki öll sammála um hvaða leiðir eigi að fara í að fjármagna þessar aðgerðir. Það er ansi erfitt að ákveða það þegar um jafn háar upphæðir er að ræða og þessar. Það er búið að nefna ýmsar leiðir. Það er búið að nefna erlendar lántökur, það er búið að nefna innlendar lántökur, það er búið að nefna það að hækka einhver gjöld, iðgjöld og annað, sem ég myndi bara kalla skattahækkun í dulbúningi, nú eða hækka skatta. Mig langaði að spyrja, af því að ég veit að hv. þingmaður hefur verið mikil baráttukona fyrir heimilin í landinu og sérstaklega tekið hart á því núna undanfarin tvö ár þegar hafa verið háir vextir og há verðbólga: Hvaða leiðir myndi hv. þingmaður telja að væru til þess fallnar að hækka ekki verðbólgu og vexti almennt á sama tíma og við tryggjum að við stöndum við bakið á Grindvíkingum, sem ég veit að hv. þingmaður er algerlega sammála mér um?