154. löggjafarþing — 77. fundur,  22. feb. 2024.

kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.

704. mál
[16:10]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir andsvarið. Eins og ég sagði í ræðu minni hérna áðan er allt flæðandi í peningum á Íslandi. Það er fullt af peningum og fjármagni til á Íslandi en það er einhvern veginn búið að setja það í einhver uppistöðulón sem bara fáeinir útvaldir hafa aðgang að. Og ef einhvers staðar er talað um að það eigi að skattleggja þetta eða ná í eitthvað af þessu fé til góðs fyrir almenning í landinu er eins og það sé verið að tala um einhvern fjarstæðan veruleika sem geti ekki átt sér stað. Það er náttúrlega bara ekkert þannig. Þetta er bara pólitísk ákvörðun. Ég hef t.d. mælt fyrir hækkun bankaskattsins held ég í fjórgang, að hann verði hækkaður í það sem hann var fyrir lækkun sem var 0,376%, undir 0,4%. Inga Sæland mælti fyrir því um daginn að hann yrði hreinlega settur upp í 0,838% sem er undir 1%. Bara sú hækkun á bankaskatti myndi gefa okkur 30 milljarða, sem er nákvæmlega upphæðin sem við erum að fara í lántökur núna með, nákvæmlega upphæðin. Þetta eru aðilar sem hafa fengið til sín — þeir eru ekkert svona klárir, hagnaður þeirra er ekki út af því að þeir séu svona klárir bisnessmenn heldur af því að það er búið að færa þeim fjármuni heimilanna í gegnum vaxtahækkanir í bílförmum, það má eiginlega segja á tankskipum, vegna þess að þetta er einhver stærsta eignatilfærsla sem hefur nokkurn tíma átt sér stað, alla vega frá hruni og með þeirri undantekningu kannski. Þetta er með ólíkindum. Ríkisstjórnin myndi aldrei hækka skatta um 200.000–300.000 kr. á hverjum einasta mánuði á heimilin en það er gert með vöxtum. Þau standa ekki undir þessu. Þarna liggur þetta fé inni hjá bönkunum (Forseti hringir.) sem hafa fengið það til sín án þess að þurfa að hafa nokkuð fyrir því, á silfurbakka, og við megum ekki koma við það.