154. löggjafarþing — 77. fundur,  22. feb. 2024.

kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.

704. mál
[16:13]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Það má ekki hækka skatta af því að það er jú eitt af kosningaloforðum Sjálfstæðisflokksins að hækka ekki skatta en á sama tíma hækka þau hin og þessi gjöld. Kannski er spurning hvort við þurfum ekki bara að hætta að tala um bankaskatt og tala um bankagjöld. Þá er kannski hægt að ná einhverju í gegn.

Mig langaði í seinna andsvarinu að tala um efni sem kom einnig fram í annarri ræðu sem er hvort við séum að halda nógu vel utan um fyrstu kaupendur eða þau sem hafa nýlega keypt sér. Ég vil ekki endilega tala um fyrstu kaupendur heldur vil ég tala um fólk sem hreinlega, eins og allir fyrstu kaupendur, þurfti að spenna bogann ansi hátt til þess að geta komið undir sig húsnæði og gat gert það í Grindavík á lægra verði en annars staðar, fólk sem, eins og hefur verið bent á, gæti átt erfitt uppdráttar í þessari lausn vegna þess að það tapar sínu litla eigin fé sem það hefur lagt þarna inn. Mig langaði að heyra aðeins í hv. þingmanni hvað hún teldi að væri hægt að gera sérstaklega fyrir þennan hóp. Ég veit að í samráðsnefndinni, sem við sátum bæði saman í og sitjum enn, ræddum við fyrstu kaupendur og sem betur fer tilkynnti fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans í morgun að það mun fyrir Grindvíkinga gilda eins og fyrir fyrstu kaupendur þegar kemur að veðhlutfalli og slíku. Er það nóg? Eða hvað þurfum við að gera fleira fyrir þennan ákveðna hóp?