kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína framsögu og fyrir samstarfið í nefndinni og tek undir þakkir hans til Grindvíkinga sem hafa komið með mikilvægar og góðar ábendingar til okkar og aðstoðað okkur við vinnslu málsins í nefndinni. Mig langar að spyrja hv. þingmann út í þessa undirliggjandi hugmyndafræði hjá samráðshópnum varðandi það að nota brunabótamat til viðmiðunar. Þó að brunabótamat sé að jafnaði hærra heldur en fasteignamat í Grindavík gefur það augaleið að það er ekki alltaf þannig. Við höfum svo sem mikið verið að ræða um það og það hefur heyrst líka frá mörgum Grindvíkingum að ein leið sé ekki endilega að fara að passa fyrir alla og mikilvægt að við höfum fjölbreytt úrræði og þar fram eftir götunum. Þess vegna velti ég fyrir mér hvers vegna ekki er farin sú leið að búa til einhverja aðeins fleiri anga heldur en þessa einu leið, í ljósi þess sem við höfum verið að sjá, sérstaklega þegar kemur að t.d. fyrstu kaupendum eða fólki sem á lítið eigið fé, að það komi jafnvel verr sett út úr þessu heldur en það fór inn í þetta — og hvort hv. þingmaður hafi ekki áhyggjur af því og hvort það þurfi ekki að grípa til þeirra aðgerða. Mér skilst að þessu gæti verið öfugt farið með allt að 30% af þessum eignum sem eru undir, hvort ekki sé eitthvað til í því að það þurfi fleiri en eina nálgun í þessum efnum.