154. löggjafarþing — 77. fundur,  22. feb. 2024.

kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.

704. mál
[16:51]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Frú forseti. Jú, ég styð það heils hugar. Veruleikinn er sá að við höfum verið í samskiptum við atvinnurekendur í Grindavík, bæði fyrir 10. nóvember þar sem mikil óvissa blasti við fyrir þann tíma en auðvitað fyrst og fremst í kjölfarið á þeim jarðhræringum sem gerðu það að verkum að það þurfti að rýma bæinn. Þetta eru um 200 aðilar, ef ég man rétt, og eru ansi fjölbreyttir. Veruleikinn er sá að sumir höfðu tækifæri til þess, voru bara einfaldlega með þannig rekstur að þeir gátu haldið áfram sínum rekstri utan Grindavíkur. Sveitarfélögin á Suðurnesjum hafa til að mynda verið ötul við að reyna að veita í þeim tilvikum sem hægt er húsnæði til fyrirtækja til að halda sínum rekstri áfram. Síðan erum við auðvitað með þá aðila sem sjá fram á altjón og ég held að það sé mjög mikilvægt að við höldum þessari vegferð áfram og tek heils hugar undir með þingmanninum. Ég held að það sé til mikils að vinna. Ég sagði það í fyrri ræðu minni varðandi rekstrarstuðninginn, ég held að það sé miklu betra, fyrir ríkissjóð, fyrir Grindvíkinga og samfélagið allt, að sem flestir sem hafa verið með rekstur í Grindavík geti að einhverju leyti haldið honum áfram eða þeim sé veitt svigrúm, eins og við erum til að mynda að reyna að búa til í þessu frumvarpi hér. Við megum aldrei gleyma því að mögulega er sú sviðsmynd uppi að eftir einhvern tíma muni Grindavík byggjast upp á ný. Þess vegna held ég að tíma þingsins, þingmanna, ráðherra og starfsmanna yfirvalda sé vel varið í að skoða það.