154. löggjafarþing — 77. fundur,  22. feb. 2024.

fjáraukalög 2024.

717. mál
[17:41]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Þó að verið sé að segja að kannski verði þessi 30 milljarða kr. aukaheimild ekki notuð, sem er verið að veita í þessu fjáraukalagafrumvarpi, og minnst á að við séum með 200 milljarða heimild sem muni kannski bara duga þá er samt verið að bæta því við, ofan á það sem 200 milljarðarnir áttu að dekka og áttu að vera svona ákveðið öryggisspil til að grípa í til þess að verja gjaldeyrissjóðinn og ýmislegt svoleiðis. Þannig að þó að nákvæmlega þessi 30 milljarða heimild verði ekki notuð þá er þetta samt 30 milljarða viðbót við álagið á 200 milljarðana sem voru settir inn upphaflega. Þess vegna þarf að bæta við svigrúmi upp á 30 milljarða sem annars hefði ekki þurft. Hæstv. fjármálaráðherra hefur talað um að hún hafi ekki viljað fara í sértæka skattheimtu eða eitthvað því um líkt til þess að álagið myndi ekki lenda á fyrirtækjum og heimilum. En aðhaldssemi eða ekki aðhaldssemi ríkisfjármálanna, þ.e. þegar Seðlabankinn lækkar ekki vexti eða jafnvel hækkar vexti eða lætur þá standa í stað lengur en ella hefði verið, lendir líka á öllum heimilum og fyrirtækjum. Munurinn er bara sá að það lendir, miðað við forsendur stýrivaxta, á öllum heimilum og fyrirtækjum á meðan ríkisstjórnin er með það vald að geta beint álaginu á ákveðinn stað í efnahagskerfinu þar sem er helst þensla. Það getur Seðlabankinn ekki. Það er það sem mér finnst vanta í efnahagsstjórn ríkisstjórnarinnar þessa dagana, það er ekki verið að horfa á álagspunktana og hjálpa til við að létta á þeim.