154. löggjafarþing — 77. fundur,  22. feb. 2024.

fjáraukalög 2024.

717. mál
[17:50]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Stefán Vagn Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir alveg fyrirtaksræðu og ég er bara alls ekkert langt frá því að geta tekið undir mikið af því sem þar kom fram. En mig langaði hins vegar að eiga orðastað við þingmann um áhyggjur okkar allra sem að þessu koma, ég held að við öll sem hér erum deilum þeim áhyggjum, af því peningamagni sem er að koma í umferð inn í hagkerfið. Mig langar að eiga samtal við hv. þingmann um það að stærsti hluti þessa fjármagns sem er að koma inn núna fer væntanlega aftur inn á fasteignamarkaðinn. Það munu örugglega langflestir Grindvíkingar sem eru að fara að fá út úr sínum eignum setja það í aðrar eignir þannig að aukningin kemur fram að mestu leyti þar. Þá erum við að tala um til hvaða aðgerða við getum gripið í raun og veru á fasteignamarkaðinum til að koma í veg fyrir eða reyna að dempa þessa bólu þannig að hún fari ekki út í verðlag og auki verðbólgu og verði til þess að Seðlabankinn eigi erfiðara með að fara í vaxtalækkanir. Það eru nokkrar leiðir sem mig langar aðeins að ræða við hv. þingmann. Annars vegar er það þetta Airbnb-frumvarp sem klárlega mun leysa hluta vandans. Síðan þurfum við náttúrlega að auka verulega framboðshlið markaðarins, við þurfum að auka íbúðamagn í umferð. En ef við myndum setja allt á fullt og segja við alla verktaka: Nú farið þið út og byggið, þá myndi slíkt líka auka þenslu. Er ekki leiðin í þessu, alla vega eins og ég sé þetta, þessar innfluttu húseiningar sem eru miklu ódýrari, eru miklu ódýrari í uppsetningu, (Forseti hringir.) krefjast minna vinnuafls og eru fljótar í uppsetningu og auka þar af leiðandi ekki á þensluna á þessum markaði?