fjáraukalög 2024.
Forseti. Ég skrifaði ekki undir nefndarálit meiri hluta fjárlaganefndar, aðallega af því að mér finnst þurfa að skoða betur efnahagsstjórnina á bak við það hvernig þessar aðgerðir eru fjármagnaðar. Ég er sammála því að það þarf að fara í þessar aðgerðir en það skiptir máli hvernig við fjármögnum þær. Út frá þeirri forsendu styð ég málið en við komum ekki til með að styðja fjáraukann sem slíkan á þeim forsendum.
Við höfum talað um sértækar mótvægisaðgerðir og í andsvarinu áðan var talað um t.d. að draga saman einhvers staðar. En við erum í þeirri stöðu að það er búið að tala um það, ég veit ekki í hversu mörg. ár að gera hitt og þetta hagkvæmara fram og til baka og skera niður hingað og þangað og alls konar loforð um sameiningar og ég veit ekki hvað og hvað og svo gerist bara lítið sem ekkert í því. Því miður held ég að ástæðan fyrir því sé sú að það er einmitt búið að skera við nögl nokkurn veginn hvar sem er. Það er talað um að við séum komin að þolmörkum í velferðarkerfinu. Þá hlaupum við upp til handa og fóta og það er allt rosalega erfitt og við verðum að bregðast alveg gríðarlega mikið við. En við erum komin að þolmörkum í heilbrigðiskerfinu líka, við erum komin að þolmörkum í menntakerfinu líka, í húsnæðismálum, við erum komin að þolmörkum í löggæslu. Hvar erum við ekki komin að þolmörkum? Og hvað er þá gert? Það er hlaupið upp til handa og fóta af því að við erum komin að þolmörkum í verndarkerfinu en ekki þegar við erum komin að þolmörkum í heilbrigðiskerfinu eða löggæslu. Nei, það er búin að vera áralöng bið eftir því að gera eitthvað í því álagi sem þar er vegna t.d. skorts á húsnæði fyrir hjúkrunarheimili, þessum svokallaða fráflæðisvanda. Hann er búinn að vera hérna allan tímann sem ég hef verið á þingi og stór orð hafa fallið um hvernig eigi að leysa þetta vandamál, það sé rosalega slæmt, en lausnin virðist vera að það þurfi að einkavæða þetta. En ekki má einkavæða þessa aðgerð, ég efast um að það sé eitthvað sem nokkrum dytti í hug. Ríkið verður að koma og redda þessu. Ríkisstjórnin verður að koma og kaupa öll húsin, æðislegt, það er ekki hægt að einkavæða það. Það er nefnilega ekki hægt að einkavæða allt.
Þegar allt kemur til alls þurfum við að skoða stóru myndina. Það er tiltölulega einfalt og augljóst hvað þarf að gera til að koma til móts við þennan bráðavanda hjá íbúum Grindavíkur, nákvæmlega hvernig er hægt að nálgast allar mögulegar aðstæður fólks sem eru mjög fjölbreyttar. Ég bað um minnisblað í efnahags- og viðskiptanefnd þegar ég var þar í afleysingum, að við myndum fá útlistun á þessum mörgu ábendingum sem við höfðum fengið vegna mismunandi aðstæðna fólks, að við myndum bara fá það fyrir framan okkur á blaði að það væru þetta margir sem væru með húsnæði og að borga leigu, það væri svona meðalálag og þess háttar, þetta margir væru með annað húsnæði sem þeir leigðu börnum sínum. Það eru nokkur svoleiðis dæmi varðandi Búmenn og þess háttar sem eru með góðar tölur yfir það en almennt séð erum við ekki með heildaryfirsýn yfir það hvernig húsnæðisstaðan er í Grindavík, sem er pínulítið áhugavert. Þess vegna er þetta svigrúm gefið í löggjöfinni, til að hægt sé að koma til móts við mismunandi aðstæður. Það býður upp á ákveðna geðþóttaákvörðun um það hver fær og hver fær ekki, sem er ástæðan fyrir því að ég myndi vilja fá yfirlit yfir það hver staðan er, allar kvartanirnar sem hafa komið og hverjir munu fá — bara lista: Hérna eru svona aðstæður, eins og hefur verið talið hérna upp, hérna eru eldri hjón sem ætluðu að minnka við sig en eru að leigja börnum sínum þangað til þau ætla síðan að flytja. Þau fá ekki uppgreidda minni íbúðina sem er kannski skuldlaus og fullar skuldir á stærri íbúðinni og koma þá miklu verr út. Hvernig verður glímt við það vandamál? Hvernig verður sú staða leyst á sanngjarnan hátt? Gefa svör við því fyrir fram en ekki eftir á.
Hérna á þingi erum við að ýta á já-, nei- eða sitja hjá-takka. Við erum að sýna sannfæringu okkar. Til þess að vita hvað við erum að kjósa um þurfum við að fá það á blaði. Við þurfum að fá að vita hver áhrif þess að greiða þessu atkvæði verða áður en við greiðum atkvæði. Maður myndi halda að það væri augljóst. Annars erum við að gefa frá okkur valdið. Fjárveitingavaldið er hérna, löggjafarvaldið er hérna en ef við vörpum því bara frá okkur og segjum: Þið reddið þessu bara, framkvæmdarvald, hvað þá? Erum við þá ekki í frekar slæmri stöðu þegar allt kemur til alls?