154. löggjafarþing — 77. fundur,  22. feb. 2024.

fjáraukalög 2024.

717. mál
[18:06]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka fyrir að minna mig á þetta. Við erum líka komin að þolmörkum hvað varðar innviði. Það er hin svokallaða innviðaskuld. Það að minnka framkvæmdir og viðhald og ýmislegt svoleiðis gengur því ekki. En við eigum í erfiðleikum með það líka. Kannski eru einhverjar framkvæmdir sem er hægt að seinka. Það kæmi mér núll á óvart ef titillinn á þeirri seinkun yrði: Þjóðarhöll seinkað. Því miður, það er dálítið þannig. Það væri hægt að leita erlendis varðandi uppbyggingu á húsnæði á svipaðan hátt og var gert eftir Eyjagosið, ekki endilega þannig að það verði fjármagnað hér, kannski fjármögnun á erlendum mörkuðum t.d., eitthvert byggingarfyrirtæki sem fjármagnaði sig bara erlendis kæmi inn með verðmætin. Það væri öðruvísi innspýting á fjármagni í íslenskt hagkerfi. Á móti því fara náttúrlega út greiðslurnar á þeim lánum. Ég veit ekki hversu gerlegt það er út af gengisáhættu o.s.frv., en það væri einn séns. Það eru möguleikar í stöðunni, hversu gerlegir þeir eru veit ég ekki af því að við höfum einfaldlega ekki aðgang að þeim gögnum. Þetta er hugmynd sem væri kannski hægt að skoða.