154. löggjafarþing — 77. fundur,  22. feb. 2024.

fjáraukalög 2024.

717. mál
[18:08]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Stefán Vagn Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég er nefnilega á svipuðum slóðum og hv. þingmaður hvað þetta varðar. Ég kom í andsvari mínu hér áðan að þessum einingahúsum eða hvaða nafni þau kallast, „,modular“ hús, svo maður sletti, einfaldlega vegna þess að tæknin er orðin þannig að það er gríðarlega mikið af fyrirtækjum sem eru bæði að flytja þetta inn og framleiða erlendis og stór hluti af kostnaði við byggingu húsnæðis hér á Íslandi og alls staðar er náttúrlega byggingarkostnaðurinn, að staðsteypa eða smíða hús frá grunni á staðnum er mjög dýrt. Ég hef þá tilfinningu og bara ákveðna sannfæringu fyrir því að slík lausn, að koma með töluvert af slíkum húsum inn á markaðinn, myndi slá verulega á framboðshlið húsnæðismála og myndi milda þetta högg sem við höfum áhyggjur af að verði okkur erfitt. Í því ljósi er ágætt að rifja upp viðlagasjóðshúsin sem voru keypt hér í Vestmannaeyjum og hafa reynst vel og eru bara í notkun enn þann dag í dag við ágætisorðstír, mörg hver. Ég er bara glaður að heyra að við erum ekkert langt frá hvor öðrum í þessu máli, ég og hv. þingmaður. En það er alveg ljóst líka að ég held að það sé mikilvægt að leita bara að eins breiðri nálgun og hægt er og kasta eins mörgu fram á borðið og hægt er og skoða flesta möguleika (Forseti hringir.) þannig að við getum talað okkur niður á þá niðurstöðu sem mun henta okkur best.