154. löggjafarþing — 77. fundur,  22. feb. 2024.

greiðsluaðlögun einstaklinga.

27. mál
[19:40]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Markmiðið með þessu frumvarpi er að bæta úrræði um greiðsluaðlögun sem sett voru árið 2010 og gera málsmeðferðina skýrari og skilvirkari, umsækjendum til hagsbóta. Það er komin talsverð reynsla á þetta úrræði. Með þessum breytingum erum við að færa löggjöfina í takt við breytt umhverfi og þarfir umsækjenda. Þessar breytingar koma til með að skipta fjölda fólks miklu máli og taka enn frekar utan um þau sem verst standa fjárhagslega í samfélaginu. Meðal breytinga er m.a. meðferð krafna sem standa utan greiðsluaðlögunar og eru þær til þess fallnar að gera úrræðið heildstæðara. Nýnæmi er að ákveðnar kröfur, t.d. um virðisaukaskatt, fésektir og meðlagsskuldir, geta nú orðið hluti af samningi um greiðsluaðlögun þrátt fyrir að ekki sé heimilt að kveða á um eftirgjöf á þeim. Námslán falla utan greiðsluaðlögunar í núgildandi lögum ásamt ábyrgðarskuldbindingum námslána en með þeim breytingum sem hér eru lagðar til falla virkar kröfur vegna ábyrgðarskuldbindinga á námslánum undir úrræðið og þannig er hægt að kveða á um meðferð þeirra í samningi. Þörfin fyrir því að greiðsluaðlögun taki til þessara krafna er afar brýn þar sem engar aðrar lögbundnar lausnir eru til staðar fyrir ábyrgðarmenn sem lenda í greiðsluerfiðleikum vegna þessara skuldbindinga og ég hvet þingmenn til að samþykkja þessar mikilvægu breytingar.