greiðsluaðlögun einstaklinga.
Virðulegur forseti. Í þessari breytingartillögu minni felst að áður en ákvörðun verði tekin um sölu fasteignar skuldara sem er jafnframt heimili hans þurfi að veita skuldara eðlilegt svigrúm til að útvega sér annað viðunandi húsnæði. Við erum hér í kvöld að fjalla um erfiðleika Grindvíkinga með húsnæði. Við vitum hvernig bankahrunið var. Eruð þið ekki að læra neitt? Fólk getur lent í veikindum og verið í ömurlegri aðstöðu, en að henda því á götuna bara vegna þess að það er hægt get ég ekki skilið. Af hverju getum við ekki hjálpað öllum fyrst við erum að þessu á annað borð? Ég sé að það er enginn vilji hjá ríkisstjórninni til þess. Hún vill alltaf skilja einhverja út undan.